Dúndurveiði
bergur_vestmannaey_0523
Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE í heimahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum sl. miðvikudag. Aflinn var mest ýsa og þorskur en einnig dálítið af löngu og ufsa. Skipin héldu á ný til veiða á föstudagsmorgun og komu síðan til hafnar á sunnudag með fullfermi. Úr þeim var landað í gær.

Aflasamsetningin úr seinni túr skipanna var svipuð og í þeim fyrri. Rætt er við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra skipanna á vef Síldarvinnslunnar, og er hann spurður hvort menn séu ekki sáttir við aflabrögðin að undanförnu.

„Jú, það er ekki hægt annað. Það hefur verið sannkölluð dúndurveiði að undanförnu. Skipin hafa samtals veitt á fyrstu fjórum mánuðum ársins um 4.600 tonn af slægðum fiski, sem er helmingurinn af því sem við veiddum allt árið 2023. Í marsmánuði var afli hvors skips 800 tonn og þau voru um 20 daga á sjó. Þorskur er drjúgur hluti aflans, eða um 50%, en það hefur verið mikil eftirspurn eftir stórþorski. Þessi þorskur hefur farið til saltfiskvinnslu hjá Vísi í Helguvík. Sannleikurinn er sá að vertíðin hefur gengið vel í alla staði. Fyrir utan góða veiði hefur veður verið hagstætt og mjög stutt að sækja aflann. Menn eru afskaplega glaðir með þessa vertíð og lukkulegir með útkomuna. Þessi mikla þorskveiði leiðir til þess að í sumar verður áhersla lögð á ýsu- og ufsaveiði. Einnig verða einhver hlé á veiðum skipanna og líklega mun hvort skip stoppa í um mánaðartíma,”

Bæði Bergur og Vestmannaey munu halda á ný til veiða á fimmtudag.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn komu til baka og náðu í stig gegn ÍA
Óskuðu eftir Baldri – fengu neitun
Petar Jokanovic áfram í herbúðum ÍBV
Rjúfum vítahringinn: Hringferð SA í Akóges-salnum
Þakklæti efst í huga
Kvennakórinn heldur vortónleika
Mikilvæg stig í húfi þegar ÍBV mætir ÍA
Fyrsta tap ÍBV í sumar kom gegn FH
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.