Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt ljósmyndasýning í Einarsstofa, á laugardaginn kemur, kl. 13:00. Rúllandi ljósmyndasýningar bæjarbúa halda áfram en um er að ræða hluta af afmælisdagskrá afmælisnefndar Vestmannaeyjabæjar. Samtals verða dagskrárnar að minnsta kosti 13 laugardaga í röð, en um 40 einstaklingar munu deila ljósmyndum sínum áður yfir lýkur. Næstkomandi laugardag 28. September, sýna þær Konný, Ruth Zohlen og Sísí Högna
Eyjar endalaus veisla lita, ljóss og skugga
„Það var meira en að segja það að halda úti 16 til 20 síðna blaði sem kom út vikulega. Og oft var það höfuðverkur að finna fallega mynd á forsíðu sem var eitt af einkennum blaðsins. Þá var gott að eiga góða að. Þar framarlega í flokki voru þær Laufey Konný Guðjónsdóttir, Sísí Högna og Ruth Zohlen, allt konur með næmt auga fyrir því fallega og sérstaka í umhverfinu. Þær stöllur verða með sýningu á myndum sínum í Einarsstofu laugardaginn sem er sú þriðja í sýningarröðinni sem stendur sem næst út árið. Verð fjarri góðu gamni en hefði gjarnan viljað mæta,“ segir Ómar Garðarsson, fyrrum ritstjóri Frétta og síðar Eyjafrétta.
Palli Steingríms hafði áhrif
Og þær eru engir nýgræðingar þegar ljósmyndun er annars vegar. „Ég var 10 ára þegar ég fékk fyrst myndavél,“ segir Sísí. „Hún var keypt hjá Jörgen í tómstundabúðinni. Palli heitinn Steingríms hafði mikil áhrif á mig þegar ég var í skóla. Kenndi okkur krökkunum að horfa, hlusta og upplifa náttúruna. Enda eru Eyjar endalaus veisla lita, ljóss og skugga . Oft teikna ég upp í huganum myndina áður en ég smelli af en teikning og ljósmyndun hefur fylgt mér lengi. Myndirnar sem ég sýni á laugardaginn eru náttúra mannlíf hús og stemning og þess háttar.“
Ljósmyndir og málverk
„Ég byrjaði að taka myndir árið 2006, þ.e. eitthvað annað en fjölskyldumyndir. Fékk þá mína fyrstu stóru digitalvél,“ segir Konný. „Það sem vakti þá áhugann var að taka myndir af mótífum sem mig langaði að mála í olíu. Til að byrja með hafði ég engan áhuga á mannamyndum en það breyttist svo og fór ég á fullt í að taka barna og fjölskyldumyndir. Ég fór í undirbúningsnám í Tækniskólanum fyrir ljósmyndun og átti um tvo áfanga eftir til að klára en það stóð aldrei til að flytja uppá land svo ljósmyndanám var ekki í myndinni. Ég hef tekið ýmis námskeið og eina önn í listrænni ljósmyndun í Menntaskólanum á Tröllaskaga.“
Hringferð um Heimaey
„Ég flutti til Eyja 1983 frá Stuttgart. Mér fannst alltaf gaman að taka myndir og byrjaði í kringum 1968,“ segir Ruth. „Eftir að ég flutti til Íslands var aðaláhugamálið náttúran. Ég vann við ferðamennsku í yfir 30 ár sem leiðsögumaður í rútu, bát, gönguferðum og rak gistiheimili í 20 ár. Það hafði þau áhrif að mig langaði að sýna fólki fjölbreytni náttúrunnar, aðallega á Heimaey, plöntur, hraunform, fuglalíf, vetrarmyndir og svo framvegis. Myndir sem ég ætla að sýna eru úr gönguferðum í kringum Eyjuna. Ég byrja við innsiglinguna. Svo koma Heimaklettur, Há, Dalfjall, Eysteinsvík, Stafnsnes, Hamarinn, Klauf, Stórhöfði, Ræningjartangi, Sæfjall, Helgafell, Eldfell og ég enda með nýja hrauni.“
Af þessu sést að sýningin í Einarsstofu kl. 13.00 á laugardaginn verður bæði fjölbreytt og skemmtileg.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst