Af hverju sala á gagnaveitu bæjarins?
eftir Tryggva Má Sæmundsson
Eyglo Njall
Njáll Ragnarsson er bæði formaður bæjarráðs Vestmannaeyja og stjórnar Eygló ehf. Samsett mynd.

Í morgun var greint frá því að bæjarráð og stjórn Eyglóar hafi samþykkt að selja Eygló. Félagið hefur unnið að lagningu ljósleiðara inn í hvert hús í Eyjum og er að fullu í eigu Vestmannaeyjabæjar. Einungis vantar samþykki bæjarstjórnar Vestmannaeyja, til þess að kaupin gangi í gegn.

Í þessu samhengi er mikilvægt að hafa til hliðsjónar að ljósleiðarakerfi er gagnaveita, og oft er lítil samkeppni eða einokun í slíkum rekstri. Við Eyjamenn erum þessi misserin að berjast á öðrum vígstöðum gegn hækkunum á vatnsgjöldum. Þar virðast Vestmannaeyjar vera teknar út fyrir sviga í gjaldskrám með umtalsverðar álögur miðað við annarsstaðar. Þarna höfðum við áður rödd við borðið og fulltrúa til að gæta okkar hagsmuna en höfum ekki lengur. Því hræða þessi spor sem nú er verið að taka.

Lokað og ógegnsætt ferli

Það verður að teljast sérstakt að þegar verið er að selja á eignir Eyglóar, fyrirtæki sem er að fullu í eigu bæjarfélagsins, að það hafi ekki verið gert í gegnum opið og gegnsætt ferli. Ferli þar sem áhugasamir aðilar hafa jafnan rétt á að bjóða í. Í Eyjum eru tæplega 2000 heimili og samkvæmt heimildum Eyjafrétta/Eyjar.net er búið að tengja ríflega helming þeirra. Hver tenging gefur Eygló rúmar þrjú þúsund krónur án VSK í kassann og voru árstekjur áætlaðar 60-70 milljónir á ári. Það má því búast við því að verkefnið muni skila fjárfestingunni hratt til baka en ljósleiðarinn á að endast í áratugi.

Spurningar sem nauðsynlegt er að svara

Samkvæmt heimildum sem undirritaður hefur undir höndum sýndi annað fyrirtæki áhuga á að taka þátt í viðræðum um kaup. Að fara í opið söluferli hefði auðveldlega getað hækkað verðmiðann á Eygló. En í staðinn var þetta gert í lokuðu og ógegnsæu ferli.

Þetta pukur vekur upp spurningar, sem hér með er beint til bæjarráðs og stjórnar Eyglóar. Spurningarnar eru þessar: Af hverju var ekki farið í opið söluferli?  Er eitthvað í samningnum sem að fjallar um verðlagningu til neytenda?

 

Tryggvi Már Sæmundsson

Höfundur er ritstjóri Eyjafréttir.is/eyjar.net og einn af fjölmörgum eigendum Eygló ehf.

 

Nýjustu fréttir

„Fjölskyldan fullyrðir að ég sé að verða níræður“ – Svabbi býður til afmælisveislu
Lára Skærings er óhrædd við að prófa nýja hluti  
Íslendingur vann 336 milljónir!
Stefnir á meistarann eftir sveinspróf í veiðarfæratækni
Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir
Vísnagátur eftir Sigurgeir
Hlustaðu á þjóðhátíðarlagið 2026
Verkefnastaðan hefur aldrei verið betri
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.