Sigurbjörg ÁR kom til Eyja í nótt
20241004 042352
Sigurbjör ÁR kemur til hafnar í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur

Í nótt kom Sigurbjörg ÁR, nýtt skip Ísfélagsins í fyrsta sinn til löndunar í Vestmannaeyjum. Skipið var smíðað í Celiktrans-skipasmíðastöðinni í Istanbúl og kom það til landsins í ágúst.

Mesta lengd er 48,10 m og breidd 14 m.  Aðalvél er MAN 1.795 kW, 800 snúningar á mínútu. Hjálparvélar eru tvær og bogskrúfa. Spilbúnaður er 4 togvindur, 3 gilsavindur, 6 grandaravindur, tvær pokavindur, átta bakstroffuspil og 2 akkerisspil ásamt hjálparvindum og dekkkrana. Vinnslubúnaður er fyrsta flokks og er sjálfvirkur búnaður sem setur afla í lest og landar, þannig að lestarvinna háseta er úr sögunni. Kælibúnaður tryggir fyrsta flokks hráefni. Siglingatæki eru frá Simberg en aflanemakerfi frá Marport. Íbúðir eru fyrir 15 manna áhöfn og öll aðstaða til fyrirmyndar, en gert er ráð fyrir tvöfaldri áhöfn. Kaupverð er ríflega 3,1 milljarður.

Sigurbjörgu er ætlað að koma í stað þriggja skipa, Jóns á Hofi ÁR,  Fróða II ÁR  og  Ottós Þorlákssonar VE. Nánar verður fjallað um skipið í næsta tölublaði Eyjafrétta. Óskar Pétur Friðriksson var mættur á bryggjuna í nótt og smellti meðfylgjandi myndum.

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.