Ásmundur sækist eftir þriðja sæti
Asi Fridriks 24 Fb L
Ásmundur Friðriksson

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sækist eftir sama sæti á framboðslista flokksins og hann var í fyrir síðustu þingkosningar, þriðja sæti.

Hann segir í færslu á facebook-síðu sinni að frá árinu 2013 hafi hann barist ötullega fyrir sjálfstæðisstefnunni og fólkinu í Suðurkjördæmi.

„Ég hef talað fyrir þá sem hafa enga rödd eða þora jafnvel ekki að tjá sig vegna öfgamanna í samfélaginu. Ég hef aldrei verið hræddur við mótvindinn, ég tek honum fagnandi!

Nú er sótt að flokknum okkar sem aldrei fyrr og þá verðum við að setja kassan út og boða fagnaðarerindið. Árum saman var ég einn að benda á það hvaða áhrif óheftur flutningur hælisleitenda myndi hafa og ég hafði rétt fyrir mér. Nú eru allir á sama máli! Sjálfstæðisflokkurinn hefur undir forystu Guðrúnar í dómsmálaráðuneytinu fækkað hælisumsóknum um tugi prósenta og enn er mikið verk að vinna. Ég mun fylgja því fast eftir!

Ég vil standa vörð um menningu Íslendinga því hún er góð og ég mun áfram berjast fyrir því sem er rétt. Ég er ungur í anda og tel mig geta gefið mun meira af mér, ég á mikið eftir. Þið þekkið mig og ég þekki ykkur! Ég mun ávallt standa fast í lappirnar með fólkinu í Suðurkjördæmi og standa vörð um gildi Sjálfstæðisflokksins.

Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér í 3. sæti á lista flokksins á kjördæmisþingi á sunnudag.” segir Ásmundur í færslunni.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.