Samgönguframkvæmdum forgangsraðað
fyrir árið 2025
Ernir Opf DSC 6789
Áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja annars vegar og Húsavíkur hins vegar yfir vetrartímann verður áfram styrkt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Alþingi samþykkti í gær fjárlög fyrir árið 2025. Heildarframlög til samgöngumála nema rúmum 62 milljörðum kr. og hækka um 9 milljarða kr. frá yfirstandandi ári, eða 17%.  Unnið verður í ýmsum stórum verkefnum á árinu 2025, m.a. á Vestfjörðum, Reykjanesbraut og við Hornafjarðarfljót. Þá verða þrír milljarðar settir í að leggja tengivegi víða um land og að fækka einbreiðum brúm. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.

Framkvæmdum á vegum, flugvöllum, höfnum og sjóvörnum hefur nú verið forgangsraðað fyrir árið 2025 þar sem ný samgönguáætlun og tilheyrandi aðgerðaáætlun var ekki afgreidd á nýloknu þingi. Fjárlög marka þó á hverjum tíma ramma fyrir framkvæmdir og þjónustu í samgöngum og samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034 er áfram í fullu gildi.

Vegaframkvæmdir árið 2025

Alls verður rúmum 27 milljörðum kr. ráðstafað til framkvæmda og viðhalds á vegakerfinu á árinu 2025. Meðal stærstu framkvæmda sem unnið verður að eru eftirtalin: Reykjanesbraut (Krýsuvíkurvegur-Hvassahraun), brú og vegtengingar við Hornafjarðarfljót, tvö verkefni á Vestfjarðavegi (Gufudalssveit og Dynjandisheiði) og Norðausturvegur (Brekknaheiði).

Áfram verður unnið að undirbúningi Sundabrautar. Þá er gert ráð fyrir framlögum vegna undirbúnings jarðgangna á fjórum stöðum (Fljótagöng, Hvalfjarðargöng, Ólafsfjörður/Dalvík og Súðavík/Ísafjörður).

Þar að auki hefjast framkvæmdir vegna Ölfusárbrúar á næsta ári (Hringvegur við Ölfusá) en gert er ráð fyrir því, eins og greint hefur verið frá, að veggjöld af umferð muni standa undir kostnaði við framkvæmdir og tefja því ekki framkvæmdir við aðra samgönguinnviði.

Tengivegir og fækkun einbreiðra brúa

Tæpir 4,3 milljarðar kr. fara í framlög í fjölbreytt sameiginleg verkefni. Þar á meðal verða 2,5 ma. kr. settir í að leggja slitlag á tengivegi um land allt og 500 m.kr. í að fækka einbreiðum brúum, eða samtals 3 ma.kr. Stefnt að því að einbreiðum brúm fækki um fimm árið 2025, á Hringveginum og utan hans.

Til viðbótar við þetta er unnið að fjölbreyttum framkvæmdum á grunni samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Meðal þess sem unnið verður að á næsta ári er Fossvogsbrú, framkvæmdir við Arnarnesveg, nýir hjóla- og göngustígar ásamt ýmsum aðgerðum í umferðastýringu. Samtals nema framlög til þessara verkefna um 6,7 ma. kr.

Framkvæmdir á flugvöllum árið 2025

Uppbygging varaflugvalla í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum heldur áfram með innheimtu varaflugvallargjalds. Samhliða verður unnið að uppbyggingu minni lendingarstaða svo þeir geti þjónað hlutverki sínu vegna sjúkra- og almannaflugs. Í fjárlögum verður um 4,7 ma.kr. varið til innanlandsflugvalla þ.a. um 1,4 ma.kr. til ráðstöfunar til framkvæmda  á árinu 2025. Meðal þess sem er forgangsraðað á árinu 2025 er vegna fjarstýrðs flugturns annars vegar og viðhalds flugbrauta og hlaða hins vegar á Reykjavíkurflugvelli, flugstöðvar á Akureyri, og undirbúnings akbrautar og flughlaðs á Egilsstöðum. Þá er fé einnig veitt í viðhald af ýmsu tagi vegna flugvalla á eftirtöldum stöðum: Bíldudal, Ísafirði, Grímsey, Þórshöfn, Vopnafirði, Norðfirði, Hornafirði og Vestmannaeyjum.

Áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja annars vegar og Húsavíkur hins vegar yfir vetrartímann verður áfram styrkt.

Framkvæmdir í höfnum og sjóvarnir árið 2025

Áfram verður unnið að uppbyggingu hafnarmannvirkja víða um land.

Ráðuneytið hefur einnig forgangsraðað framkvæmdum á vegum hafnarbótasjóðs fyrir árið 2025. Alls verða framlög ríkisins vegna hafna og sjóvarna rúmur 1,6 ma.kr.  árið 2025. Á eftirtöldum stöðum verður unnið við framkvæmdir við hafnir og sjóvarnir: Snæfellsbæ, Grundarfirði, Stykkishólmi, Reykhólahreppi, Bíldudal, Súðavík, Ísafirði, Bolungarvík, Skagaströnd, Sauðárkróki, Siglufirði, Dalvík, Húsavík, Vopnafirði, Borgarfirði eystri, Djúpavogi, Hornafirði, Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, Sandgerði og Njarðvík.

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.