Dagskrá um sjóslysið við Eiðið 16. desember 1924
Sjóslys 16des1924 Teikning 10des2024
Átta menn drukknuðu við fjöruborðið norðan við Eiðið í slysinu.

Mánudaginn 16. desember kl. 16 verður boðið upp á dagskrá í Sagnheimum til minningar um hið hörmulega  sjóslys við Vestmannaeyjar, fyrir réttum eitt hundrað árum, er átta menn drukknuðu við fjöruborðið norðan við Eiðið.

Helgi Bernódusson flytur erindi um slysið og þá sem drukknuðu og myndir verða sýndar um uppsetningu minningarsteins sem reistur var nálægt þeim stað er ýtt var úr vör.

Að lokinni dagskrá verður farið út á Eiði þar sem verður stutt athöfn við steininn þar sem búið er að koma fyrir skilti til minningar um þá sem drukknuðu.

Boðið er upp á kaffi og konfekt í Sagnheimum. Dagskráin er styrkt af SASS en Vestmannaeyjabær, Sögusetur 1627 og Miðstöðin styrkja gerð minningarskiltisins.

Nýjustu fréttir

Bærinn grípur til aðgerða til að fækka bjargdúfum
Í mörg horn að líta um borð í Kap VE
Mikill munur á æfingagjöldum barna
Ný byrjun hjá Vinum í bata
Herjólfur breytir áætlun á morgun
Meira unnið í salt en á öllu síðasta ári
Breyttar innheimtureglur leikskóla samþykktar
Nýtt og betra ON app komið í loftið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.