Embla semur við ÍBV
Embla Ibvsp
Embla Harðardóttir í leik með ÍBV. Ljósmynd/ibvsport.is

Eyjakonan Embla Harðardóttir hefur samið við knattspyrnudeild ÍBV til loka árs 2027. Fram kemur í frétt á vefsíðu ÍBV að Embla hafi spilað upp alla yngri flokkana hjá ÍBV og verið lykilmaður í sínum liðum síðustu ár.

Embla er 18 ára gömul. Hún hefur leikið 26 meistaraflokksleiki fyrir ÍBV. Þrettán þeirra lék hún í Lengjudeildinni síðasta sumar, en á sama tíma var hún lykilmaður í U20-ára liði ÍBV sem vann sér sæti í A-deild að nýju. Segir jafnframt í fréttinni að tilhlökkun sé innan félagsins til samstarfsins við Emblu á komandi árum.

Nýjustu fréttir

Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Úttekt á fasteignagjöldum ársins
Mikil gróska í fimleikastarfi og mót framundan
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.