Þrettándinn frumsýndur í kvikmyndahúsum í Eyjum og Reykjavík
Þetta einstaka skot af upphafi þrettándagleðinnar tók Sighvatur Jónsson árið 2015 af jólasveinum ganga ofan af Há til móts við Grýlu, Leppalúða, tröll og bæjarbúa við rætur fjallsins. Mynd/SIGVA media

Heimildarmyndin frumsýnd í Eyjabíói og Háskólabíói 27. desember næstkomandi

„Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Þrettándinn verður frumsýndur í bíóum í Vestmannaeyjum og í Reykjavík,“ segir Sighvatur Jónsson, einn af höfundum heimildarmyndar um þrettándagleðina í Eyjum. Áður hafði verið tilkynnt um frumsýningu myndarinnar 27. desember næstkomandi í Eyjabíói.

„Bíóhjónin Svavar Vignisson og Ester Garðarsdóttir tóku strax vel í þá hugmynd að sýna myndina milli jóla og nýárs og aftur á laugardegi þrettándahelgarinnar. Þegar við höfðum samband við kvikmyndahús í Reykjavík vegna sýninga um hátíðarnar tók Eyjakonan Ásta María Harðardóttir hjá Háskólabíói okkur fagnandi. Myndin verður því frumsýnd samdægurs í Eyjum og í Reykjavík,“ segir Sighvatur.

Miðasala eingöngu á Karolina Fund

Hin einstaka þrettándagleði hefur verið haldin óslitið í núverandi mynd í ríflega sjötíu ár. Áhugasamir Eyjamenn og aðrir unnendur hátíðarinnar geta nálgast miða á söfnunarsíðu framleiðenda myndarinnar hjá Karolina Fund.

„Við höfum gantast með það okkar á milli við framleiðsluna undanfarið að fólk geti nú gefið tröllslega jólagjöf því á síðunni bjóðum við miða fyrir tvo, hvort heldur er á frumsýninguna í Eyjabíói 27. desember næstkomandi kl. 18:00 eða sama dag í Háskólabíói kl. 15:00. Á síðunni getur fólk líka keypt miða á sérstaka þrettándasýningu myndarinnar í Eyjabíói laugardaginn 4. janúar 2020 kl. 15:00,“ segir Sighvatur.

Sighvatur vinnur að myndinni ásamt Geir Reynissyni og Hrefnu Díönu Viðarsdóttur. „Við erum í stöðugu sambandi þessa dagana og það er mjög hentugt að við Hrefna Díana búum í sama hverfi hér í Njarðvík,“ segir Sighvatur. Hann bætir við að annar Eyjamaður sem er búsettur í Njarðvík aðstoðar við framleiðsluna. „Já, Viktor Rittmüller sem margir Eyjamenn muna eftir sem ‘alt muligt’ manni úr leikhúsinu í Eyjum býr hér í sama hverfi líka. Viktor aðstoðar við klippingu myndarinnar enda er myndefnið gríðarlega mikið eftir upptökur síðustu fimm þrettánda.“

Tónlist eftir Halldór Gunnar og Röggu Gísla

Tónlist myndarinnar er unnin af Halldóri Gunnari Pálssyni og Ragnhildi Gísladóttur. Bæði þekkja þau vel til þrettándagleðinnar í Eyjum. Tónlistin rammar inn spennu, dulúð, fegurð og söknuð. „Á þrettándanum kveðjum við jólin, þetta er ljúfsár stund,“ segir Halldór Gunnar.

Sighvatur leitaði til Halldórs Gunnars í framhaldi farsæls samstarfs við tónlist fyrir heimildarmyndina Fólkið í Dalnum um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sem Sighvatur framleiddi með Skapta Erni Ólafssyni í sumar.

„Við Skapti erum sammála um að Halldór Gunnar hefur náð sérstöku sambandi við Vestmannaeyjar, íbúana og menninguna. Og ekki bara þjóðhátíð, því Halldór Gunnar hefur líka komið á þrettándann sem hann hefur hrifist mjög af. Ég var með Röggu í huga vegna aðkomu að báðum myndum sem ég vil ekki fara nánar út í núna. En þegar ég leitaði til hennar vegna þrettándamyndarinnar ljómaði hún jafnmikið og Halldór Gunnar. Úr varð að þau vinna tónlistina saman – og meira segjum við ekki að sinni. Enda verður myndin að vera sveipuð dulúð eins og þrettándinn,“ segir Sighvatur leyndardómsfullur.

Hópfjármögnun stendur yfir á Karolina Fund fyrir Þrettándann, heimildarmynd SIGVA media. Framleiðendur myndarinnar má styrkja með „tröllaklappi á bakið“ og kaupum á bíómiðum. Þá er hægt að kaupa skoðunarferð um tröllasmiðjuna og heimsókn frá Grýlu og Leppalúða.

Nýjustu fréttir af framleiðslu Þrettándans eru á Facebook síðu myndarinnar.

 

Ný kynningarstikla:


http://vimeo.com/hvati/threttandi2019

https://youtu.be/ezIZqYDgLGQ

 

Þrettándinn – heimildarmynd um þrettándagleðina í Eyjum á Facebook:

http://facebook.com/ThrettandinnHeimildarmynd/

 

Hópfjármögnun Þrettándans hjá Karolina Fund:

https://www.karolinafund.com/project/view/2652

Nýjustu fréttir

Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.