Nýverið fékk ritstjórn Eyjafrétta ábendingu um að komnir væru kalkúnar á túnið vestan við Haugasvæðið. Líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum. Ekki fylgir sögunni hverjir hafa flutt þá til Eyja. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kalkúnar eru fluttir til Eyja, en árið 2009 var greint frá því á síðum Eyjafrétta að Árni Johnsen hafi flutt fimm kalkúna út í Bjarnarey.
Uppfært: Fram kemur á facebook-síðu Eyjafrétta að kalkúnarnir séu í eigu Ingvars Arnars Bergssonar en hann flutti kalkúnaegg til Eyja og ungaði út. Ingvar segir að þetta séu virkilega skemmtilegir fuglar. Hann biður fólk um að vera ekki að gefa þeim né hænunum brauð. „Það gerir þá ofbeldishneigða og ekki gott fyrir lifrina þeirra, ég er búinn að leggja mikla vinnu í að gera þá gæfa svo mér þætti vænt um að fólk taki tillit til þess.”
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst