Nokkrir miðar eftir á herrakvöld ÍBV
Herrakvöld Crop
Það verður margt skemmtilegt á dagskrá herrakvöldsins.

Hið árlega herrakvöld fótboltans verður haldið miðvikudaginn 30. apríl nk. í Golfskálanum.  Einsi Kaldi og Rikki kokkur munu bjóða upp á dýrindis sjávarréttahlaðborð.  Veislustjóri verður Bjarni Ólafur Guðmundsson.  Ræðumenn verða þeir Ásmundur Friðriksson og Stefán Einar Stefánsson.  Það mun síðan verða Leó Snær Sveinsson sem mun sjá um að koma fólki í sönggírinn áður en kvöldið lokar.

Vel hefur gengið að selja miða en því miður verður takmarkað magn til sölu þar sem húsrúm er takmarkað.  Í fyrra var uppselt er í kringum 170 karlmenn skemmtu sér frábærlega í Kiwanishúsinu.  Í ár má búast við að stemmingin verði ekki síðri og því eru þeir sem ætla sér að mæta hvattir til að tryggja sér miða áður en verður um seinan.

Miðasala fer fram á skrifstofu ÍBV í Týsheimilinu, segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV.

Nýjustu fréttir

Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.