Aggan - Frítt smáforrit sem tryggir öryggi sjómanna

Smáforritið Agga, á vegum nýsköpunarfyrirtækisins Alda Öryggi, býðst íslenskum smábátasjómönnum þeim að kostnaðarlausu. Um er að ræða sérhannað öryggisstjórnunarkerfi, sem nútímavæðir, auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála smábáta. Forritið heldur öllum upplýsingum er varðar öryggismál bátsins á einum stað. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Nú eru leyfðir fleiri veiðidagar og má því búast við aukinni sjósókn á strandveiðunum. Til að tryggja öryggi sem best er mikilvægt að smábátasjómenn framkvæmi eigin skoðanir á bátnum og búnaði hans. Agga auðveldar þá vinnu alla og leiðir sjómenn í gegnum allt það sem mikilvægt er að athuga og hafa í huga hvað öryggi þeirra varðar. Í smáforritinu eru gátlistar sem leiða sjómenn í gegnum eigin skoðun og áhættumat á ástandi og öryggi bátsins. Gátlistarnir eru gerðir af Landssambandi smábátaeigenda, Samgöngustofu og Slysavarnaskóla sjómanna.

Í Öggunni geta sjómenn einnig skoðað ýmsa öryggisfræðslu til upprifjunar og framkvæmt nýliðafræðslu. Sömuleiðis geta smábátasjómenn tilkynnt sjóatvik eins og vélarbilun, strand, eld um borð eða slys á sjómönnum í ATVIK-sjómenn gengnum appið. Þær tilkynningar berast  beint til Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) en lögbundið er að smábátasjómenn tilkynni slík atvik til þeirra. Mikilvægt er að það sé gert svo hægt sé að nýta upplýsingar um atvik í forvarnarskyni í öryggismálum til sjós.

Agga er frítt fyrir alla smábátasjómenn og er fáanlegt á App Store og Google Play. Sjómenn þurfa bara að sækja appið, nýskrá sig og geta þá strax hafist handa við eigin skoðanir og áhættumat til að tryggja að þeir séu tilbúnir og öruggir fyrir komandi veiðitímabil. Hægt er að fá leiðsögn um notkunina og nálgast nánari upplýsingar á heimasíðunni agga.is. Einnig má sjá myndband um kerfið þar sem farið er yfir helstu aðgerðir þess hér að neðan.
Play Video

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.