Kvennafrídagsins minnst á 1. maí
Fjölmenni var í 1. maí kaffinu og börn áberandi mörg.

Drífandi stéttarfélag fagnaði 1. maí í Akóges þar sem þess var sérstaklega minnst að í ár eru 50 ár liðin frá Kvennafrídeginum. Vel var mætt og margt í boði, bæði í orði og tónum auk veglegra veitinga. Guðný Björk Ármannsdóttir, brottflutt Eyjakona flutti ávarp dagsins þar sem 50 ára afmæli Kvennafrídagsins var meginþemað.

Tekið var á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum. Allir fengu Hölluklút um hálsinn og kaffi vöfflur og fleira góðgæti var á boðstólum. Konur úr Kvennakór Vestmannaeyja fluttu nokkur lög og við tók tónlistarveisla frá Tónlistarskóla Vestmannaeyja sem sá að vanda um tónlistarflutninginn.

 

Guðný Ármannsdóttir í ræðustól.

 

Kvennakór Vestmannaeyja flutti nokkur lög við góðar undirtektir.

 

Tónlistarskólinn bauð upp á mikla tónlistarveislu.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.