Víkingahátíð verður haldin þann 17. maí nk. á túninu við Safnahús í tengslum við Safnadaga. Hátíðin stendur frá kl. 11:00-17:00. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar.
Þar segir enn fremur að víkingafélagið Rimmugýgur úr Hafnarfirði ásamt nýstofnuðu Víkingarfélagi Vilborgu verði hér í Vestmannaeyjum. Ætlunin er að reisa lítið víkingarþorp við Sagnheima. Verða víkingar gráir fyrir járnum á vappinu, sýningarbardagar og víkingamarkaður. Ásamt því verða víkingar að stunda handverk og aðrir sem eru spennt að miðla fróðleik til gesta og gangandi. Engin aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir!
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst