Heimsklassa Gin þar sem vindar og veður ráða för
Skálað - Með bros á vör og gleði í hjarta. Kári, Hjálmar, Arnar Jón, Birkir og Daníel Geir.

„Ég er stofnandi Ólafsson Gin sem er vinsælasta Gin á Íslandi en hætti þar öllum daglegum afskiptum árið 2021. Hef þó verið með annan fótinn í áfengisbransanum og velt fyrir mér hvað sniðugt er hægt að gera. Hef ferðast um heiminn og kynnt íslenskt Gin og er alltaf spurður að því hvað sé svona sérstakt við það?“ segir Arnar Jón Agnarsson stofnandi Mosigin ehf. Við erum staddir við sjö eikartunnur í hlíðum Eldfells. Óvarðar fyrir veðri og vindum og þarna hafa þær verið í tvo og hálfan mánuð. Arnar Jón er Eyjamaður í báðar ættir, barnabarn Björgvins Magnússonar hafnsögumanns og Þórunnar Markúsdóttur og Helga Gestssonar kranamanns og Árnýjar Jónsdóttur.

Það kemur því ekki óvart að hann hafi haft Vestmannaeyjar í huga þegar hugmyndin að veðurbörðu Gini varð til. Tunnurnar sjö eru allar notaðar og í þeim hafa þroskast sjö mismunandi vín. Með í för eru miklir vínspekingar, Birkir Hlynsson, Hjálmar Viðarsson, Kári Kristján og Daníel Geir Moritz auk blaðamanns sem þarna var lentur á nettu kenderíi án þess að smakka dropa. Arnar Jón heldur áfram að tala um kynningu á íslenska Gininu.

Séríslenskt

„Maður nefnir íslenska vatnið og blóðbergið  og fær spurningar á móti, af hverju er það betra en Gin annars staðar í heiminum? Það er oft erfitt að svara þessu  og þá varð til hugmyndin, hvað getum við gert sem er séríslenskt? Bragðbætt með einhverju frá Íslandi þannig að aðrir geti ekki hermt eftir,“ segir Arnar Jón og bætir við að hugmyndin hafi kviknað þegar hann fékk tvær kampavínsflöskur að gjöf á jólum fyrir tveimur árum. Önnur hafði verið á hafsbotni en hin í geymslu.

„Sú sem kom af hafsbotni var öll í hrúðurkörlum. Það var mjög ólíkt bragð af þeim en upphaflega var nákvæmlega sama kampavínið í þeim báðum. Þá fór ég að velta fyrir mér hvort hægt væri að gera eitthvað þessu líkt á Íslandi. Þá kom þessi hugmynd að veðra áfengið sem hefur ekki verið gert áður svo ég viti. Hugmyndin er að endurskilgreina Gin með því að láta náttúruna ráða för. Móta vínið með Íslandi í sinni fjölbreyttu mynd,“ segir Arnar Jón.

 

Fagmennska – Það leyndi sér ekki að þarna eru fagmenn á ferð. Töluðu um vín af ótrúlegri þekkingu og djúpum skilningi.

 

Bragð frá flestum heimshornum

Vínið, sem er 61 prósent dregur í sig bragðið af þeim vínum sem áður í tunnunum. „Það besta er að þær draga líka í sig náttúruna. Hér hafa það verið í tvo og hálfan mánuð. Við erum líka með tunnur í Langjökli og það er gjörólíkt bragð af þeim en það er nákvæmlega sama Ginið á báðum stöðum.“ Ginið er geymt í Islay viskí tunnu, Mezcal tunnu frá Mexikó, Púrtvínstúnnu frá Porto, Sauternes tunnur frá Bourdoux, vermúð tunnu, Trip Sec appelsínulíkjörstunnu og loks Chardonney tunnur frá Burgundy.

Tunnurnar eru sérvaldar og koma víða að úr heiminum og að fá réttu tunnurnar er mjög flókið og kosta þær frá 200.000 krónum upp í 500.000 krónur stykkið. „Þær eru alls ekki hannaðar til að vera úti. Liturinn breytist með hverri vikunni og þær láta á sjá. Eru ekki farnar að leka en hleypa augljóslega einhverju úr umhverfinu í gegn um sig. Það eru olíur í Gininu sem gefa því bragð. Þær erum mjög næmar fyrir öllum breytingum, hita, raka og hér kemur smá selta. Ástæðan að ég valdi Heimaey og Langjökul er að munur á aðstæðum verður varla meiri,“ sagði Arnar Jón og bætti  við að nú værum við með árgang 2025 fyrir sjónum.

Sýnishorn – Það sýndi sig að Arnar Jón kann til verka þegar hann tók sýnishorn úr tunnunum.

 

Sami grunnur en ólíkt bragð

Næst verður það árgangur 2026 sem hann segir að verði mögulega öðruvísi. „Tunnurnar verða aldrei eins og það sama á við um vínið. Við verðum með færri tegundir því nú erum að við að finna út hvaða vín henta best. Ég hef komið reglulega og er að kynna vínið fyrir reyndum barþjónum. Það eru allir virkilega ánægðir. Það kemur svo bragð úr tunnunni og veðrið gefur svo lokatóninn.“

Arnar Jón segir að úr hverri tunnu komi um 700 hálfslítra flöskur og að um einstaka vöru sé að ræða. Þar skipta máli staðurinn, áhrif umhverfisins og fleiri  þættir sem gera vínið einstakt. Á sér ekki hliðstæðu í öllum heiminum. „Tunnurnar breytast hægt og ég nota þessar einu sinni í viðbót. Þá verður vínið öðru vísi af því að þær hleypa meiru í gegnum sig. Veðrið er líka breytilegt frá ári til árs sem gerir þetta enn meira spennandi, ekki síst fyrir safnara,“ sagði Arnar Jón og þá hófst smökkunin.

Með roða í kinnum á sjöundu og síðustu tunnunni.

 

Fullkomin upplifun

Þó Ginið í tunnunum væri 61 prósent létu smakkararnir miklu það ekki á sig fá. Mikið spjallað um hverja smökkun og jókst það í réttu hlutfalli við áfengismagnið. Sumt hentaði að þeirra mati í kokteila, annað með Tonic en í það ljúfasta þurfti ekkert nema klaka til að fullkomna upplifunina. Ginið verður blandað niður í 41 prósent þegar það fer á markað sem gerir það mýkra.

„Það verður til dæmis til  sölu í Vestmannaeyjum og getur fólk á leið til Eyja pantað flösku sem það fær afhent við komuna. Fleiri geta sýnt víninu okkar áhuga en gin-áhugafólk. Það á eftir að höfða til áhugafólks um vín almennt. Líka safnara sem geta safnað árgöngum af Mosagini og engin faska smakkast eins. Einstök upplifun, einstakt vín í heimsklassa og í takmörkuðu magni. Nú er verkefnið að koma því á markað sem verður spennandi,“ sagði Arnar Jón að endingu.

 

Af heimasíðu Mosa

Hjá Mosa búum við ekki bara til gin — við mótum það með Íslandi sjálfu. Sýn okkar var djörf frá upphafi: að taka fágað, handgert gin og láta það verða fyrir villtustu kröftum sem náttúran getur boðið upp á. Ekki í rannsóknarstofu. Ekki í kjallara. Heldur úti í hráum öfgum Íslands — inni í jökli og ofan á eldfjalli. Tveir andstæðir heimar. Einn brennivínsdrykkur.

Við köllum ferlið veðrun, því það eru frumefnin sem móta brennivínið. Það snýst ekki bara um tunnur, hitastig eða tíma — þó það skipti líka máli. Það snýst um að láta náttúruna skrifa hluta af uppskriftinni. Vindinn. Saltið. Kuldinn, hlýjan. Þögn djúps íss. Þessir kraftar skilja eftir sig spor og draga fram óvænt bragð í brennivíninu.

Tunnurnar okkar eru fylltar með sérsmíðuðu grunngini okkar — eimað í litlum skömmtum með jurtum sem eru valdar fyrir einstaka eiginleika. Síðan látum við sama ginið þroskast á tveimur gjörólíkum stöðum: á fyrrum brennandi, breytilegu eldfjallahlíðum Eldfells í Vestmannaeyjum og í frosnu kyrrðinni djúpt inni í Langjökli. Við látum síðan veðrun spila sinn þátt og niðurstöðurnar eru ótrúlegar.

Hver tunna er valin með persónuleika að leiðarljósi. Við notum tunnur sem áður innihéldu vermút, mezcal, sauternes, Íslenskt viskí og fleira. Ginið drekkur í sig bergmál hvers áfengis og sameinar það umhverfi sínu. Engar tvær framleiðslur eru eins. Ekkert ár er eins, þetta er vintage gin og þetta er veðrað gin. Ekkert annað gin í heiminum er framleitt á þennan hátt, að minnsta kosti ekki svo vitað sé.

Hvers vegna að fara svona langt?

Vegna þess að Ísland er meira en bakgrunnur okkar – það er samstarfsaðili okkar. Mosi er nefnt eftir íslenskum mosa sem lifir af gegn öllum líkum – hægvaxandi, seigur, dafnar við erfiðustu aðstæður. Það er tákn um allt sem við stöndum fyrir: kyrrlátan styrk, rótgróna nýsköpun og djúpa tengingu við landið okkar.

Við erum ekki að reyna að skapa annað ginmerki. Við erum að byggja upp sögu í hverri flösku — sögu sem byrjar í náttúrunni og endar í glasinu þínu. Hvort sem þú sippir henni á fyrsta flokks bar eða uppgötvar hana á vindasömum slóðum á Íslandi, þá ert þú að smakka einstakt áfengi bragðað af landi, sjó, eldi og ís, í eðli sínu bragðbætt af Íslandi.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.