Eykur aflaheimildir til strandveiða
trillur
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Breytingin heimilar auknar aflaheimildir til strandveiða sem nemur 1.032 tonnum á fiskveiðiárinu 2024-2025. Við aukninguna eykst heildarafli á strandveiðum úr 10.000 tonnum í 11.032 tonn. Þetta kmeur fram í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Þar segir jafnframt að svigrúm til aukinna aflaheimilda skapaðist í gegnum viðskipti Fiskistofu á skiptimarkaði á íslenskri sumargotssíld. Boðin voru 5.478 tonn sem 1.032 tonn af þorski fengust fyrir og hafði ekki verið ráðstafað á yfirstandandi fiskveiðiári.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá desember 2024, kemur fram að ríkistjórnin ætli að tryggja 48 daga til strandveiða. Í samræmi við það og til viðbótar við ofangreint lagði atvinnuvegaráðherra fram frumvarp fyrir Alþingi í maí sl. um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Frumvarpið gerir ráð fyrir að á fiskveiðiárinu 2024/2025 verði ráðherra heimilt að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við aflamagn á fiskveiðiárinu 2024/2025.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.