Skora á stjórnvöld að endurskoða málið
14. júlí, 2025
Hofnin TMS 20220630 084235 La 25
Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri ákvörðun stjórnvalda að knýja í gegnum Alþingi með fordæmalausum hætti lagabreytingu um stórfellda hækkun á veiðigjaldi, þvert á aðvaranir fjölda fagaðila hjá hinu opinbera, sveitarfélaga, sérfræðinga og atvinnulífsins. Svona hefst ályktun Útvegsbændafélags Vestmannaeyja vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um veiðigjald.

Enn fremur segir í ályktuninni að með lögunum sé verið að setja á verulega skattahækkun sem byggist á óþekktu skattandlagi og kolröngum útreikningum, sem eykur verulega óvissu í rekstrarumhverfi sjávarútvegsins. Langstærsti hluti umsagna sem bárust atvinnuveganefnd sýna að breytingin geti haft íþyngjandi og ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir rekstur útgerða og fyrir sveitarfélög, sérstaklega í byggðum á borð við Vestmannaeyjar, þar sem sjávarútvegur er burðarás samfélagsins.

Sveitarfélög og atvinnurekendur hafa varað við því að þessi skattlagning muni óhjákvæmilega leiða til mikilla breytinga í sjávarútvegi sem leiðir til lakari afkomu og afleiðingarnar verða:

  • Fækkun starfa í greininni sjálfri og hjá þjónustufyrirtækjum.
  • Minni geta til að greiða samkeppnishæf laun sem leiðir til atgervisflótta úr greininni.
  • Samdráttur í fjárfestingum, m.a.:
    • Í endurnýjun skipa m.t.t. orkusparnaðar, betri meðferðar fisks sem og öryggi sjómanna. Skipaflotinn mun eldast.
    • Fiskvinnsla flyst úr landi með tilheyrandi samdrætti og þróun tækja og búnaðar stöðvast.
  • Samdráttur í nýsköpun í hliðtengdum greinum.
  • Lækkandi arðsemi í greininni og fjármagnsflótti út úr henni.
  • Verri lánakjör greinarinnar og hækkun fjármagnskostnaðar.

Á endanum mun skattspor sjávarútvegs minnka og tekjur þjóðarbúsins þ.a.l. minnka.

Með þessum breytingum bætist við enn ein óvissan í rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja, sem þegar búa við óstöðugleika vegna árlegra breytinga á veiðiheimildum og síbreytilegra forsendna á mörkuðum erlendis. Stríð og óvissa í alþjóðamálum gera sölu afurða erfiðari og eru stjórnvöld með aðgerðum sínum að draga enn frekar úr samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.

Málið snýst ekki um fjórar til fimm fjölskyldur eins og forsætisráðherra hefur haldið fram. Þetta snýst um alla starfsmenn sem starfa hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og í afleiddum störfum í Vestmannaeyjum og víðar. Þetta eru þúsundir fjölskyldna í landinu sem hafa beina og óbeina hagsmuni af farsælum rekstri í sjávarútvegi. Gangi reksturinn illa þá líður samfélögunum illa.

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja skilaði inn umsögn um frumvarpið til atvinnuveganefndar Alþingis. Í fyrsta skipti í 100 ára sögu félagsins kom þó sú staða upp að forsvarsmönnum þess var ekki boðið að mæta á fund nefndarinnar til að ræða sjónarmið sín við þingmenn meirihluta og minnihluta. Slíkt fordæmalaust verklag dregur úr trúverðugleika málsmeðferðar og grefur undan lýðræðislegum vinnubrögðum.

Útvegsbændafélagið bendir á að óháðir aðilar og sérfræðingar hafa bent á að lagasetning af þessu tagi sé varhugaverð og kunni að stangast á við grundvallarreglur um jafnræði og fyrirsjáanleika. Slík lagaákvæði hafa í fortíðinni leitt til kostnaðarsamra og margra ára málaferla, þar sem aðilar hafa þurft að sækja rétt sinn fyrir dómstólum til að vinda ofan af rangri lagasetningu eftir á.

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja skorar á stjórnvöld að endurskoða málið, leggja grunn að faglegri og ábyrgri lagasetningu og virða bæði eðlilega stjórnsýslu og réttmætar athugasemdir hagsmunaaðila.

 

Útvegsbændafélag Vestmannaeyja

Bergur-Huginn ehf. Bylgja VE 75 ehf.
Frár ehf.                Huginn ehf.
Ísfélag hf. Narfi ehf.
Ós ehf. Vinnslustöðin hf.
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.