Það var mikið fjör hjá krökkunum á Rey Cup helgina 22. – 26. júlí. Það var keppt í U-14 og U-16 aldursflokkum í ár og stóðu Þróttur Reykjavík og Valur uppi sem sigurvegarar í karlaflokki og Bayern Munich í kvennaflokki. ÍBV sendi lið bæði úr 3. og. 4. flokki karla og kvenna. Krakkarnir stóðu sig öll mjög vel og voru félaginu til sóma.
4. flokkur kvenna tefldi fram einu liði en í því voru 16 leikmenn þegar allar voru heilar en eitthvað var um meiðsli innan herbúða liðsins á meðan á mótinu stóð og því gátu ekki allar tekið þátt í öllum leikjunum.
Stelpurnar drógust í gríðarlega sterkum riðli, með Bayern Munchen, KA 1 og Stjörnunni 1. Allt mjög öflug lið sem tefldu fram sínum sterkustu liðum á mótinu og því enduðu stelpurnar á að spila í A2-úrslitum. í undanúrslitum léku þær hörkuleik við Tindastól sem þær náðu að vinna 1-0 og þar með tryggja sér sæti í úrslitum. Þar var andstæðingurinn C2 United frá Bandaríkjunum. Bandaríska liðið hafði leikið mjög góðan varnarleik á mótinu og ekki enn fengið á sig fleiri en eitt mark í neinum leik þegar hingað var komið til sögu. Það átti þó eftir að breytast þar sem leikmenn ÍBV skoruðu tvö glæsileg mörk og unnu sterkan 2:1 sigur en í leiðinni tryggði liðið sér bikarinn fyrir sigur í sinni keppni. Frábært hjá stelpunum sem unnu vel fyrir bikarnum.
3.flokkur kvenna tefldi fram liði með 16 leikmönnum fyrstu þrjá dagana en 18 leikmönnum á síðasta deginum. Með liðinu voru þrír lánsmenn frá KFR sem komu vel inn í hópinn og náðu að tengjast stelpunum vel, þær gerðu gott lið betra.
Stelpurnar voru í riðli með Bayern Munchen, Stjörnunni 1, ÍA 1 og UK Soccer Academy frá Bandaríkjunum. Eftir riðlakeppnina var liðunum skipt upp í efstu 4 og neðri 6, ÍBV var í neðri hlutanum og spiluðu umspilsleik við FC Suðuroy frá Færeyjum til að skera úr um hvort liðið spilaði um 5.-8. sæti eða um 9.-10. sætið. Leikmenn ÍBV fundu markaskóna fyrir leikinn gegn Færeyingunum og sigruðu hann 6:0 með þremur mörkum frá Lilju Kristínu Svansdóttur og einu frá Petru Mettu Kristjánsdóttur, Glódísi Dúnu Óðinsdóttur og Tönju Harðardóttur. Selpurnar enduðu á að spila lokaleik sinn gegn Stjörnunni 2 um sjöunda sæti mótsins sem vannst 1-0.
4. flokkur karla tefldi fram tveimur liðum á Rey Cup en það var ÍBV 1 sem spilaði í B-keppninni og ÍBV 2 sem spilaði í C-keppninni. Frá flokknum léku 29 strákar í mótinu, 15 með liði 1 og 14 með liði 2.
Lið 1 lék í fjögurra liða riðli en ásamt þeim voru 15 önnur lið í mótinu sem var leikið í fjórum riðlum. Að lokinni riðlakeppni á föstudeginum fóru efstu tvö liðin úr hverjum riðli í 8-liða úrslit, þar mættu strákarnir KF/Dalvík sem höfðu ekki enn tapað leik, þeir töpuðu þó sínum fyrsta leik þar sem ÍBV sigraði örugglega 5:0 með tveimur mörkum frá Gísla Christian og mörkum frá Jósúa Steinari, Gauta og Kastíel. Næsti leikur var undanúrslitaleikur gegn Selfossi 3, þar þurfti vítaspyrnukeppni til að komast að því hvort liðið spilaði úrslitaleikinn. Selfyssingarnir voru sterkari í vítakeppninni og unnu 2:3. Strákarnir spiluðu því um bronsið gegn Sindramönnum en þar vannst enn einn sigurinn þar sem Elvar Breki og Gísli Christian skoruðu einu mörk leiksins. Flott mót hjá strákunum sem léku vel saman og unnu vel fyrir bronsinu.
Lið 2 lék í C-keppninni eins og áður segir en þar gerði liðið virkilega gott mót. Í keppninni voru 12 lið en var þeim skipt í tvo sex liða riðla. Í riðli ÍBV voru Doca (lið frá USA), Snæfellsnes 2, Valur 4, Austurland 3 og Njarðvík 4. Strákarnir unnu fyrsta leikinn, töpuðu næsta en náðu að vinna síðustu þrjá leikina sem tryggði þeim sæti í úrslitaleiknum þar sem þeir mættu Hamri/Ægi 2, þar vannst góður 5:1 sigur en meðal markaskorara voru Sigmar Gauti með 2, Kristján Lárus og Guðbjörn Ingi skoruðu líka. Flottur sigur hjá strákunum sem tryggðu sér í leiðinni sigur í keppninni.
3. flokkur karla tók þátt í mótinu og voru með 15 leikmenn, 6 frá KFR og 9 frá ÍBV, flott samstarf hjá liðunum en stuttu fyrir mótið var strákunum boðið að taka þátt í mótinu af mótshöldurum. Það var því mikil gleði að fá að taka þátt í frábæru móti sem þessu.
Strákarnir voru í riðli með Austurlandi 3, Þrótti 4 og Njarðvík 2 fyrstu tvo dagana en sigurvegari riðilsins tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum mótsins með bestu liðunum í 3. flokki. Strákarnir töpuðu fyrsta leiknum en unnu seinni tvo og tryggðu sér efsta sætið í riðlinum og sæti í 8-liða úrslitum mótsins. Strákarnir töpuðu leiknum í 8. liða úrslitum gegn Þrótti og enduðu á að spila um 7. sæti.
Lokaleikurinn var markasúpa og skoruðu ÍBV strákarnir fjögur mörk gegn níu mörkum Njarðvíkinga. Mótið var þó skemmtilegt hjá strákunum sem enduðu í efri helmingnum af öllum liðunum í 3. flokki karla á mótinu sem verður að teljast góður árangur. Strákarnir lögðu grunninn að góðum árangri í riðlinum sem þeir voru í fyrstu tvo dagana og áttu einnig margar frábærar frammistöður í þessum sex leikjum sínum á mótinu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst