,,Vont er þeirra ránglæti, verra þeirra réttlæti“
17. september, 2025
Binni Opf
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Sigurgeir B. Kristgeirsson svarar Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Morgunblaðinu í dag. Kolbrún gagnrýndi í helgarblaði Morgunblaðsins málþóf stjórnarandstöðunnar í veiðigjalda-umræðunni á Alþingi. Sagði hún m.a. það vera sjálfsagt af forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, að gagnrýna þetta nýja Íslandsmet í ræðu sinni við þingsetningu og nefna að hugsanlega væri tímabært að hugleiða breytingar á þingskapalögum.

Grein Sigurgeirs Brynjars má lesa hér að neðan, en þar fullyrðir hann að í hinum nýsamþykktu lögum um hækkun veiðigjalda sé fullt af rangfærslum og villum. Hann segir málið því enn vanrætt og reifað.

Kolbrún Bergþórsdóttir pistlahöfundur Morgunblaðsins, og bókmenntagagnrýnandi í Kilju Egils Helgasonar á RÚV, gerir málþóf stjórnarandstöðunnar vegna veiðigjalda að umræðuefni í síðasta Sunnudagsmogga.  Þar segir hún meðal annars að þingmenn stjórnarandstöðunnar ,,lögðu gríðarlegan metnað í að sinna málþófinu af staðfestu, eins og ruglingslegar ræður þeirra sýndu svo glöggt. Þær áttu ekkert skylt við vitsmunalegan málflutning enda voru þær eingöngu fluttar í þeim tilgangi að stunda málþóf.“

Kolbrún Bergþórsdóttir er glöggur og skemmtilegur rýnandi bóka.  Af því að hafa horft á hana mér til ánægju fjalla um bækur í Kiljunni þá hef ég áttað mig á að hún fjallar um innihaldið en ekki umbúðirnar.  Hún greinir skáldverkið sjálft, fléttuna, frásagnarstílinn, málfarið og efnisþráðinn.  Gengur sagan upp eða ekki, er hún skiljanleg og lesanda til skemmtunar og ánægju eða ekki?

Af pistli Kolbrúnar er augljóst að hún fellur í gildru þess að  fjalla um ,,bók“ sem hún hefur ekki lesið og þaðan af síður skilið.  Hún hefur hlýtt á RÚV og innihaldslausa umfjöllun þess um ,,málþófið“ og tímalengd þess en ekki lesið  sér til gagns sitt eigið blað, Morgunblaðið, sem fjallaði ítarlega um efnisatriði málsins.

Ég hlustaði á nokkuð af umræðum þingmanna stjórnarandstöðu um  tvöföldun veiðigjalda.  Að mínu áliti voru þær hvorki ruglingslegar né án vitsmunalegs innihalds.  Þvert á móti.  Þar fjölluðu þingmenn um óvönduð vinnubrögð við framlagningu frumvarpsins, sem var fullt af villum og rangfærslum. Þeir töluðu um skort á tíma til vandaðs undirbúnings við svo umfangsmikið mál auk þess að allar greiningar skorti.  Má þar nefna skort á greiningu á áhrifum á sveitarfélög sem byggja á sjávarútvegi, áhrif á þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi, almenn áhrif á nýsköpun sem tengist sjávarútvegi og hefur verið afar kraftmikil og síðast en ekki síst á hinn almenna starfsmann í sjávarútvegi og fyrirtækin sjálf.  Þannig vöruðu þingmenn við alvarlegum afleiðingum af samþykkt frumvarpsins.  Hér ætla ég að fullyrða, án þess að útskýra í þessari grein, að í hinum nýsamþykktu lögum um hækkun veiðigjalda er fullt af rangfærslum og villum.  Málið er því enn vanrætt og reifað.

Í þau skipti sem stjórnarliðar tóku þátt í umræðunni sneri málflutningur þeirra að réttlæti til handa þjóðinni, leiðréttingu veiðigjalda, sem var nýyrði um skattahækkun og um meint málþóf.  Afar lítil efnisleg umræða þeirra leit dagsins ljós.

Nú eru afleiðingarnar að koma í ljós.  Í Eyjum  misstu fjölmargir vinnuna við lokun fiskvinnslu Leo Seafood. Á Siglufirði var öllum sagt upp hjá hinu nafntogaða SR-vélaverkstæði sem þjónustaði fyrst og fremst fiskimjölsverksmiðjur og frá Ísafirði berast fréttir um uppsagnir starfsmanna hjá Ístækni vegna samdráttar í þjónustu við sjávarútveg.  Kolbrún hefur vafalítið lesið þessar fréttir á síðum Moggans áður en hún skrifaði pistil sinn.

,,Vont er þeirra ránglæti,  verra þeirra réttlæti“ sagði  Jón Hreggviðsson í Íslandsklukku nóbelskáldsins.  Bókmenntagreinandi einn telur hann fulltrúa soltins almúga gagnvart hinu ópersónulega valdi þess sem það hefur.  Ég væri ekki hissa á því að þótt starfsfólki Leo Seafood hafi liðið á svipaðan hátt gagnvart stjórnvöldum og Jóni Hreggviðssyni þegar því var tilkynnt um atvinnumissi fyrir stuttu.  Ég, harðsvíraður sægreifinn, saknaði þess í pistli Kolbrúnar að þar örlaði fyrir samúð með þeim sem urðu fyrir atvinnumissinum sökum skattahækkana á sjávarútveg.

Í barnaskóla lék ég mitt eina hlutverk á sviði.  Jón Þeófílusson, galdramann að vestan, sem beið með Jóni Hreggviðssyni eftir aftöku sinni í dýflissunni á Bessastöðum.  Að sumu leyti get ég séð mig í Jóni Þeófílussyni sem átti þá ósk heitasta að verða höggvinn en ekki brenndur.  Trúlega geta ýmsir í sjávarbyggðum landsins skilið þá afstöðu Jóns Þeófílussonar í dag.

 

Sigurgeir B. Kristgeirsson

Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
8. tbl. 2025
8. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.