Líflína mín til Eyja er vaður sem heldur
Eyjakappar komnir í súlubyggðina í Eldey, fv. Valur Andersen, Henry Gränz, Hörður Hilmarsson, Ólafur Kristinn Tryggva son, Guðjón Jónsson og Ragnar Jónsson á Látrum.

Raggi á Látrum var einn af peyjunum á Vestmannabrautinni. Hann var hægur, hreinn og beinn en alvörugefinn. Hann var meira fyrir bókina, læs áður en hann kom í skóla og lærði dönsku af lestri dönsku blaðanna og gat því talað við Ripp, Rapp og Rupp á undan hinum peyjunum.

Í kjallaranum á Látrum var hann oft með hreyfimyndasýningar sem voru eftirsóttar af peyjunum í nágrenninu og Gaui bróðir Ragga var kominn með orðaforða sem enginn annar hafði tamið sér í miðbænum. Leikfélagar hans voru Óli Sigurvins á Hjalteyri, bræðurnir Guðmar og Sigurður Stefánssynir í Akurey, Jón í Langholti og fleiri. Þeir léku sér með gjarðir af hjólum og þar var hlaupið eftir rúllandi gjörðum um allan bæ og inn í Spröngu og þar sást á eftir Ragga upp á Há og Eggjar.

Raggi á Látrum var eftirsóttur læknir sem lærði lögfræði til að geta tekist á við verkefnin sem honum voru falin. Raggi á Látrum hefur alltaf treyst þeim vað sem hann hefur sjálfur hnýtt og varðaði lífsbrautina með þekkingu og lífsbjargandi aðgerðum fyrir marga.

Raggi á Látrum deilir hér broti af sögu sinni með lesendum Eyjafrétta í blaði dagsins. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér. Viltu gerast áskrifandi – smelltu þá hér.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.