Það var mikið um dýrðir í morgunkaffinu á hafnarskrifstofunni í Vestmannaeyjum í morgun. Tilefnið var að Kristján Hilmarsson er að láta af störfum vegna aldurs. „Ég held að þetta séu orðin 13 ár síðan ég byrjaði hjá höfninni,“ sagði Kristján sem flestir þekkja sem Stjána Nínon. Foreldrar hans voru Hilmar Sigurbjörnsson og Jónína Ingibergsdóttir. „Ég verð sjötugur 21. október og hætti þann fyrsta.“
Kristján var sem sjómaður vel kunnur höfninni áður en hann réði sig sem hafnarvörð. „Ég byrjaði að róa með pabba á Sigurbirni VE 329 ellefu eða tólf ára gamall en hóf sjómennsku fyrir alvöru á Álsey með Kjartani Guðfinnssyni. Hraðfrystistöðin átti Álsey sem var 70 tonna eikarbátur. Byrjaði þar 14 ára sem kokkur og síðan hef ég verið á fullt af bátum, Danska Pétri, Illuga með Matta frænda og Frá VE svo nokkrir séu nefndir,“ segir Kristján og má segja að höfnin hafi verið hans vettvangur frá unga aldri.
„Maður ólst upp hér á bryggjunum og þannig fékk maður að smakka á þessu fyrst. Það er mjög fínt að vinna hjá höfninni. Umhverfi sem maður þekkir og verið mjög fínt í alla staði. Vel staðið að öllu og alltaf eitthvað að bætast við eins og gengur,“ segir Kristján að endingu.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst