Bræla hefur haft veruleg áhrif á veiðar togaranna í Síldarvinnslusamstæðunni að undanförnu, að því er segir í frétt á heimsíðu fyrirtækisins.
Þar segir enn fremur að Vestmannaeyjatogararnir, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafi landað slöttum í Neskaupstað sl. fimmtudag og aftur á mánudag. Aflinn var blandaður, mest ýsa og þorskur í fyrri túrnum en að langmestu leyti þorskur í þeim síðari. Þorskurinn í síðari túrnum fékkst á Litlagrunni. Bæði skip héldu til veiða á ný í gær.
Í samtali við rekstrarstjóra útgerðarinnar kom fram að veðrið hefði verið heldur óhagstætt að undanförnu og í reyndinni væru menn að sæta lagi á milli lægða hvað veiðarnarnar varðar. Fram kom að skipin hafi að undanförnu lagt áherslu á ýsuveiði en ýsan héldi sig grunnt og það væri erfitt að sækja hana í því veðri sem ríkt hefur.
Jóhanna Gísladóttir GK landaði slatta í Hafnarfirði sl. mánudag en komið var inn vegna brælu. Gullver NS hefur verið að veiðum austur af landinu síðustu dagana. Í morgun voru Vestmannaey og Bergey að veiðum í Lónsbugtinni og Jóhanna Gísladóttir var á leiðinni austur fyrir land.