Vestmannaeyjabær úthlutar samfélagsstyrkjum
radhustrod_ráðhús_merki_cr
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í dag undirrituðu Drífa Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar og Hrefna Jónsdóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs Vestmannaeyja samninga við styrkþega um fjárstyrk vegna verkefna sem hlutu styrk í tengslum við „Viltu hafa áhrif?“ fyrir fyrri hluta árið 2026. Hæsta styrkinn að þessu sinni hlaut Fræðslu- og símenntunarmiðstöð vegna uppsetningar á leiksýningu fyrir fatlað fólk, en sá styrkur nam 1.000.000 kr.

Í tilkynningu á vef Vestmannaeyjabæjar segir að markmið sjóðsins sé að styrkja menningar-, lista-, íþrótta- og tómstundastarfsemi í Vestmannaeyjum með því að styðja við og hvetja einstaklinga, félagasamtök og listahópa til eflingar á viðburðum og verkefnum á sviði menningar, lista, íþrótta og tómstunda. Má þar m.a. nefna styrki til fjölda sýninga, menningartengda viðburða og göngustíga.

Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og spennandi. Óskar Vestmannaeyjabær öllum styrkþegum til hamingju. Hér að neðan má sjá hvaða verkefni hljóta styrk úr sjóðnum.

  1. Handknattleiksdeild IBV – 350.000 kr.
    Styrkur fyrir að bjóða upp á handboltaskóla fyrir börn í 3. – 6. bekk í vetrar- eða jólafríinu 2026. Þjálfarar og leikmenn úr meistaraflokki munu aðstoða iðkendur. Verkefnið á að skapa vettvang fyrir börn til þess að mæta og hreyfa sig, læra grunnatriðin í handbolta og kynnast íþróttinni í jákvæðu umhverfi. Markmiðið er einnig að auka áhuga barna á handbolta og hvetja þau til að hefja reglulegar æfingar hjá ÍBV.
  2. Karlakór Vestmannaeyja – 300.000 kr.
    Styrkur fyrir verkefninu Jól í hjarta þar sem kórinn mun koma fram í aðdraganda jóla fyrir ýmsa aðila, m.a. stofnanir og félagasamtök. Reynt er að verða við öllum óskum sem kórnum berast án endurgjalds.
  3. Innileikvöllur fyrir börn – 400.000 kr.
    Styrkur til að vinna að því að opna innileikvöll fyrir börn í Vestmannaeyjum með leiksvæði fyrir yngri börn. Einnig er möguleiki að bjóða upp á afmælisherbergi og kaffiaðstöðu. Tilgangur er að fjölskyldur geti komið saman í öruggt, skapandi og veðuróháðu umhverfi.
  4. Listasmiðja náttúrunnar – 400.000 kr.
    Styrkur fyrir Listasmiðju náttúrunnar sem er fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Þátttakendur sækja innblástur í nærumhverfi og náttúruna, fara í vettvangsrannsóknir og skissa úti. Þeir kynnast ólíkum aðferðum við listsköpun og skissuvinnu og vinna með efnivið úr náttúru Vestmannaeyja ásamt því að fá kennslu í nýjungum í listsköpun frá listgreinamenntuðum kennurum.
  5. Ég bý á Heimaey – 250.000 kr.
    Styrkur fyrir verkefni sem felst í því að heimsækja íbúa Vestmannaeyja í vinnu, heim eða þeirra uppáhalds stað í Eyjum og taka af þeim portret í þeirra besta umhverfi. Lokamarkmið er að hafa sýningu á bæði prentuðum verkum ásamt sýningu á skjám.
  6. Jólasveinar ganga um gólf – 200.000 kr.
    Styrkur fyrir jólasýningu með jólasveinum þar sem tveir jólasveinar koma fram á sviði með gítar og spila og syngja með börnunum í sal. Á milli laga segja jólasveinar skemmtilegar sögur og brandara. Áætlað er að sýningin taki um 45 mínútur og verður á Háaloftinu í Höllinni.
  7. Fræðslu- og símenntunarmiðstöð – 1.000.000 kr.
    Styrkur fyrir uppsetning á leiksýningu fyrir fatlað fólk. Leiksýning með þátttöku fatlaðs fólks sem verður sett á svið fyrir páska 2026. Með verkefninu er vilji til þess að skapa vettvang þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla skapandi tjáningu, byggja upp sjálfstraust og miðla eigin hæfileikum og reynslu til samfélagsins.
  8. Fræðslu- og símenntunarmiðstöð – 400.000 kr.
    Styrkur fyrir námskeiðið ertu að missa af lestinni – er gervigreind fyrir alla. Námskeið fyrir 60 ára og eldri og er tilgangur þess að einstaklingar sem sækja námskeiðið geti aukið sjálfstæði og öryggi með notkun tækninnar og haft gagn og gaman að. Námskeiðið verður vettvangur þar sem eldri borgarar geta lært saman, deilt reynslu og styrkt félagslega tengingu.
  9. Taflfélag Vestmannaeyja – 300.000 kr.
    Styrkur fyrir 100 ára afmælisblað og skákmót. Nefnd sem stofnuð var í tilefni 100 ára afmælis Taflfélags Vestmannaeyja ætlar að standa fyrir 100 ára afmælisskákmóti helgina 29.-30. ágúst nk. sem verður opið öllum og þess vænst að keppendur komi víðsvegar af landinu. Einnig á að gefa út blað í tilefni af afmælinu.
  10. The Beluga Building Company ehf. – 250.000 kr.
    Styrkur fyrir hátíðina Celebrating Vestmannaeyjar. Tveggja daga hátíð í Beluga hvalasafninu og Lundabjörgunarstöðinni  í febrúar 2026 sem sameinar menningu Vestmannaeyja, umhverfisvernd og fjölskylduskemmtun. Markmiðið er að styrkja samfélagið, styðja við heimafyrirtæki og auka vitund um náttúruvernd SEA LIFE Trust.
  11. Hollvinasamtök Hraunbúða – 300.000 kr.
    Styrkur fyrir: Tónleikar fyrir okkar besta fólk. Hollvinasamtök Hraunbúða vilja koma á tveimur árlegum tónleikum á heimilinu. Sá fyrri á fyrri hluta ársins og sá seinni á seinni hluta ársins. Bjóða á upp á veitingar fyrir heimilisfólk og aðstandendur þeirra.
  12. Knattspyrnudeild ÍBV  – 350.000 kr.
    Styrkur fyrir fjölskyldudag ÍBV knattspyrnu. Á þessum degi viljum við sameina fjölskylduna í skemmtilegum degi þar sem efla á samkennd iðkenda og fjölskyldna þeirra. Meistaraflokkar félagsins halda opnar æfingar fyrir alla sem mæta, horfa og taka þátt. Vera á með leiki fyrir alla og fyrirlestur um mikilvægi mataræðis og líkamlegs heilbrigði. Einnig á að kynna það starf sem fer fram innan knattspyrnunnar og reyna að efla fjölskyldurnar meira til þátttöku í starfinu.

Nýjustu fréttir

Kona fer í framboð
Kjósum með hjartanu!
Þrjú framboð takast á um níu sæti í bæjarstjórn
Saman gerum við góðan bæ enn betri
Hundruð hafa þegar kosið utan kjörfundar í Eyjum
Líflegur lokasprettur í baráttunni – myndir
Þungavigtarfólk byggði upp Vestmannaeyjar
Áttatíu eldri borgarar í sælunni á Tenerife
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.