Herjólfur mun sigla eina ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi í dag. Brottför frá Vestmannaeyjum verður kl. 07:00 og brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:45. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Þar segir jafnframt að ferðir dagsins kl. 08:15, 09:30, 12:00, 13:15, 14:30 og 15:45 falli niður. Á þessum árstíma er ávallt hætta á færslu milli hafna og því er ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Tilkynning vegna siglinga seinniparts dags verður gefin út fyrir kl. 15:00.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst