Síldarveisla í Vinnslustöðinni
Sverrir Gunnlaugsson og Ólafur Elísson mættu í veisluna. Ljósmyndir/vsv.is

Hefð er orðin fyrir því að bjóða starfsmönnum, fyrrverandi starfsmönnum og velunnurum Vinnslustöðvarinnar til síldarveislu á aðventunni. Í frétt á vef fyrirtækisins segir að veislan hafi fest sig í sessi sem kærkominn viðburður í aðdraganda jóla og nýtur ár eftir ár mikilla vinsælda.

Það eru þau Ingigerður Helgadóttir og Benóný Þórisson sem bera hitann og þungann af skipulagningu veislunnar. Þau sjá um að verka jólasíld Vinnslustöðvarinnar auk þess að standa fyrir síldarskiptum við önnur uppsjávarfyrirtæki. Með því fá gestir tækifæri til að njóta fjölbreyttrar jólasíldar víðs vegar af landinu.

Á boðstólnum í ár var, auk jólasíldar Vinnslustöðvarinnar, síld frá fjölda uppsjávarfyrirtækja. Meðlætið var klassískt og vel til fundið – kartöflur, rúgbrauð, egg og sinnep – og myndaði með síldinni sannkallaða aðventuveislu í notalegu andrúmslofti.

Síldarveislan er ekki aðeins matarveisla, heldur einnig mikilvægt tækifæri til samveru, spjalls og endurfunda. Hún minnir á gildi góðra samskipta og samstöðu þegar líður að jólum og setur fallegan svip á jólaundirbúninginn hjá Vinnslustöðinni.

Aðeins meira af síld. Þá má geta þess að síldveiðar og vinnsla hafa gengið vel í haust og vetur hjá VSV og er nú brostið á jólafrí eftir annasaman tíma. Starfsemin hefst að nýju strax á nýju ári, þegar haldið verður áfram af krafti í síldarvinnslu, segir að lokum í fréttinni.

Myndir frá síldarsmakkinu má sjá hér.

Ingigerður Helgadóttir við síldar-hlaðborðið.

Nýjustu fréttir

Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.