Þórður og Einar láta af störfum hjá VSV
Einar ásamt Lilju Björgu Arngrímsdóttur, yfirmanni starfsmannamála hjá VSV og Þórður ásamt Sverri Haraldssyni, sviðsstjóra botnfisks. Mynd/vsv.is

Í lok síðasta árs kvöddu forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar tvo öfluga og trausta starfsmenn, Þórð Hallgrímsson, yfirmann á netaverkstæði VSV, og Einar Bjarna hjá Leo Seafood.

Einar lét af störfum fyrir jól, samhliða því að Leo Seafood lokaði endanlega, en Þórður hætti störfum um síðustu áramót. Af því tilefni hittu forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar Einar og Bjarna Rúnar, son hans í Leo á þeirra síðasta vinnudegi þar fyrir jól og var Einari þá færð kveðjugjöf. Þórði var síðan færð kveðjugjöf á árlegri skötuveislu netaverkstæðisins á Þorláksmessu.

Í frétt á vef Vinnslustöðvarinnar er jafnframt rifjuð upp skemmtileg saga sem Einar sagði í samtali við fréttaritara fyrirtækisins og lýsir vel þeim anda og áræðni sem einkenndi starfsemina. Þar segir frá því þegar Daði Pálsson, vinur hans sá á afar glæsilegt og stórt fundarborð í Reykjavík og haft samband við Bjarna Rúnar til að kanna hvort það kæmist ekki örugglega fyrir á skrifstofu Leo Seafood. Bjarni Rúnar mældi því rýmið hátt og lágt og komst að þeirri niðurstöðu að borðið væri einfaldlega of stórt – nánar til tekið um tveimur metrum of langt.

Eftir stutta þögn í símanum kom svarið hjá Daða: „Nú, jæja. Við byggjum þá bara við skrifstofuna.“

Og það varð úr. Ekki var verið að tvínóna við hlutina – lausnin var einföld og framkvæmdin skjót. Að sögn Einars lýsir sagan vel áræðni og verklagi þess tíma, þar sem hlutirnir voru látnir ganga upp með útsjónarsemi og ákveðni.

Þórður hefur starfað hjá Vinnslustöðinni frá árinu 1989 og Einar hjá Godthaab í Nöf / Leo Seafood frá stofnun árið 2001. Báðum eru færðar þakkir fyrir farsælt starf og framlag í gegnum árin.

Nýjustu fréttir

Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.