Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var hetja Hearts í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í gríðarlega mikilvægum sigri gegn Hibernian, í Skosku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Tómas byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á þegar um 15 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Aðeins 12 mínútum síðar var Tómas búinn að skora sigurmark leiksins. Harry Milne átti þá fyrirgjöf frá vinstri vængnum inn á teiginn og Tómas kláraði snyrtilega í markið. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út þegar markið mikilvæga kom. Þetta var þriðja mark Tómasar í skosku deildinni síðan hann kom til liðsins síðasta sumar frá Val.
Hearts heldur sex stiga forskoti sínu á Rangers, á toppi deildarinnar, en Rangers á leik til góða.