Loðnuvertíðin er nú hafin af fullum krafti og berast fregnir af góðri veiði hjá uppsjávarskipum. Nokkur skip hafa þegar komið með myndarlegan afla til lands og fleiri eru ýmist við löndun eða á leið í höfn, sem gefur til kynna kröftuga byrjun á vertíðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá Eyþóri Harðarsyni, útgerðarstjóra Ísfélagsins, kláraði Suðurey löndun í morgun og er nú verið að landa upp úr Sigurði VE en hann var með um 600 tonna afla. Að henni lokinni tekur Heimaey við.
Heimaey kom til Eyja í gærkvöldi með um 800 tonn eftir góða veiði við Alviðru, þar sem skipið kastaði þrisvar sinnum og fékk aflann allan á þeim slóðum. Skipið bíður nú löndunar. Þá er Álsey á leið til Þórshafnar með um 1.000 tonn.
Í færslu sem birt er á facebooksíðu Vinnslustöðvarinnar segir að loðnan gangi nú hratt vestur eftir suðurströnd landsins. Gullberg var á loðnumiðunum í gær og lagði af stað til Eyja undir kvöldið með um 840 tonn af fallegri loðnu sem sem byrjað var að frysta í nótt.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.