Liam Daði gengur til liðs við ÍBV
Liam Daði Jeffs er gengin í raðir ÍBV. Ljósmynd/ibvsport.is

Knattspyrnumaðurinn Liam Daði Jeffs hefur gengið til liðs við ÍBV en hann kemur frá Þrótti Reykjavík. Hann hefur gert fjögurra ára samning við knattspyrnudeildina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá knattspyrnudeild ÍBV sem birt er á vef félagsins.

Liam er uppalinn í Vestmannaeyjum en foreldrar hans eru Ian Jeffs og Sigríður Ása Friðriksdóttir, sem bæði hafa unnið magnað starf fyrir knattspyrnudeild ÍBV.

Liam verður tvítugur á árinu. Hann lék með ÍBV upp alla yngri flokkana þar til hann flutti á höfuðborgarsvæðið á 16. aldursári. Hann var lykilmaður í liði Þróttar á tímabilinu og skoraði 10 mörk í þeim 24 leikjum sem hann spilaði með liðinu í Íslandsmótinu þegar Þróttarar rétt misstu af sæti í efstu deild.

Lengi vel var Liam miðjumaður en hann færði sig framar á völlinn á síðustu árum sínum í yngri flokkunum og var orðinn öflugur sóknarmaður í 2. flokki þegar hann fór að fá fleiri tækifæri í meistaraflokki Þróttar, sem hann nýtti einstaklega vel svo eftir var tekið.

Í tilkynningunni segir enn fremur að það sé mikið gleðiefni fyrir ÍBV að fá í sínar raðir Eyjamann sem býr yfir þeim gæðum sem Liam hefur og hlakkar knattspyrnuráðið til samstarfsins.

Nýjustu fréttir

Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.