Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 vegna reksturs Náttúrustofu Suðurlands. Viðaukinn hljóðar upp á 5.399.000 krónur.
Í breytingunni felst að framlag Vestmannaeyjabæjar til stofunnar lækkar um samtals 799 þúsund krónur. Jafnframt eru heimiluð kaup á tækjabúnaði að fjárhæð 4,6 milljónir króna umfram gildandi fjárhagsáætlun. Fram kemur að viðaukinn verði fjármagnaður með handbæru fé Náttúrustofu. Málið var lagt fram sem viðauki 10 við fjárhagsáætlun 2025 og var samþykkt samhljóða á fundi bæjarráðs.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.