
Þessa dagana er mikið um að vera í pólitíkinni. Hér í Eyjum eru flokkar farnir að setja sig í startholurnar að vinnu við framboð sín til kosninga og eðlilega margir bæjarbúar farnir að huga að því hvaða fólk ætli að gefa kost á sér í þessi mikilvægu störf.
Eftir nokkra umhugsun hef ég tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á mér aftur til sveitarstjórnarkosninga. Það er ekki ákvörðun sem ég tek létt því árin í sveitarstjórn hafa verið bæði lærdómsrík og gefandi.
Nú er ég að ljúka mínu öðru kjörtímabili fyrir Eyjalistann þar sem ég hef setið sem aðalmaður í bæjarstjórn en á kjörtímabilinu þar á undan starfaði ég sem varamaður bæjarstjórnar og formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs.
Ég er afar þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og fyrir tækifærið til að starfa að málefnum samfélagsins okkar. Starfið hefur kennt mér margt um samvinnu og ábyrgð og ekki síst um þann kraft sem býr í fólkinu hér í Eyjum. Í vor mun ég ganga frá borði reynslunni ríkari og með mikla virðingu fyrir þeim sem leggja sig fram í þágu bæjarins bæði kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélagsins.
Nú tel ég tímabært að stíga til hliðar og gefa öðrum færi á að taka við keflinu. Lýðræðið okkar verður sterkast þegar fólk úr ólíkum áttum gefur kost á sér og leggur sitt af mörkum. Ég vil því sérstaklega hvetja öll sem hafa áhuga á að láta gott af sér leiða að íhuga að bjóða sig fram og taka þátt í þessu mikilvæga starfi. Uppstillingarnefnd Eyjalistans tekur við ábendingum um fólk sem hefði áhuga á að taka sæti á lista í vor á netfangið eyjalistinn@gmail.com eða í síma 772-4245.
Hlýjar kveðjur
Helga Jóhanna Harðardóttir , bæjarfulltrúi Eyjalistans
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.