Óska eftir framlengingu á flugi vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Flug Ernir Farthegar Jan 2024 Tms Lagf
Frá Vestmannaeyjaflugvelli. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Samgöngumál voru til umræðu á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni, þar sem meðal annars var farið yfir umsögn bæjarins um samgönguáætlun og stöðu flug- og siglingasamgangna við Eyjar.

Umsögn Vestmannaeyjabæjar um samgönguáætlun var send í umsagnargátt Alþingis þann 10. febrúar síðastliðinn. Bæjarstjóri fylgdi umsögninni eftir á fundi umhverfis- og samgöngunefndar 12. febrúar þar sem ítrekaðar voru alvarlegar athugasemdir sveitarfélagsins við áætlunina.

Siglingar til Þorlákshafnar feli í sér verulega skerðingu á samgöngum

Bæjarstjóri greindi frá því að óskað hafi verið eftir framlengingu á flugi til og frá Eyjum vegna aðstæðna í Landeyjahöfn. Erindið hefur verið sent til innviðaráðuneytisins og Vegagerðarinnar og er beðið eftir viðbrögðum.

Siglingar til Landeyjahafnar hafa verið stopular undanfarið og hefur ferjan Herjólfur því þurft að sigla í auknum mæli til Þorlákshafnar. Samkvæmt gildandi samningi eiga flugsamgöngur að leggjast af 28. febrúar næstkomandi. Bæjaryfirvöld telja hins vegar nauðsynlegt að halda úti flugi á meðan ekki er hægt að sigla fulla áætlun til Landeyjahafnar.

Í bókun bæjarráðs er lögð áhersla á að reglulegar siglingar til Þorlákshafnar feli í sér verulega skerðingu á samgöngum fyrir íbúa og fyrirtæki í Eyjum.

Tilnefna fulltrúa í vinnuhóp Vegagerðarinnar

Einnig var tekið fyrir erindi frá Vegagerðinni þar sem óskað er eftir fulltrúa í vinnuhóp um breytingar og uppbyggingu á aðstöðu Herjólfs í Vestmannaeyjum.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að tilnefna framkvæmdastjóra Herjólfs og hafnarstjóra í vinnuhópinn.

Nýjustu fréttir

Krakkarnir á Víkinni fögnuðu útskrift
Sjómennska, Surtsey og sveitarstjórn í nýjum Eyjafréttum
Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Lífríki íslenskra hafna í hættu?
Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu
Samningi Filip Stuperavic rift við ÍBV
Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.