S!ll! sendir frá sér nýtt lag og heldur tónleika í kvöld
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 í Ásgarði
Screenshot
S!ll! á sviði. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 í Ásgarði í kvöld. Ljómynd/aðsend.

Sigtryggur Örn Ólafsson, sem notar listamannsnafnið S!ll!, er 15 ára tónlistarmaður og er að stíga sín fyrstu skref í tónlistarheiminum. Hann flutti til Vestmannaeyja í byrjun síðasta árs ásamt fjölskyldunni. Sjálfur hafði hann búið í Kópavogi en er vel tengdur Eyjunum: „Já, pabbi er alinn upp í Vestmannaeyjum, svo ég hef oft komið og verið hér hjá ömmu og afa, en í fyrra fluttum við fjölskyldan til Vestmannaeyja.“

S!ll! hefur undanfarin ár unnið að tónlist og kom meðal annars fram á Rave-ballinu í Barnaskólanum í vetur við góðar undirtektir. „Það var mjög gaman að syngja á Rave og Doctor Victor hefur hjálpað mér mikið í tónlistinni.“

Nú er S!ll! búinn að gefa út lagið „Veit hvað hún vill“, sem hann samdi ásamt vinum sínum, þeim Birki Gauta Bergmann og Jakobi Þór Möller. Lagið kom út seint í gærkvöldi og hefur fengið góðar viðtökur.

Auk þess að gefa út nýtt lag ætlar S!ll! að halda tónleika í kvöld í Ásgarði: „Mig langaði að fagna nýja laginu. Fyrst var hugmyndin að bjóða bara nokkrum vinum og félögum að hlusta á lagið, en svo þegar við vorum að spjalla um þetta stækkaði hugmyndin og við ákváðum að bjóða fleirum að vera með og halda skemmtilega tónleika í Ásgarði,“ segir S!ll! spenntur. Miðasalan fór í gang fyrir hálfum mánuði og hefur gengið vonum framar, en það verður líka hægt að fá miða við dyrnar.

Lagið verður formlega frumflutt í kvöld. Hann samdi það ásamt Birki Gauta og Jakobi Möller og S!ll! biðlar til Eyjamanna að hlusta. „Það væri frábært ef öll eyjan myndi hlusta einu sinni á lagið.“ Lagið má finna til dæmis á Spotify.

Þú ert aðeins 15 ára og að halda tónleika – hvernig tilfinning er það?
„Það er bara geggjuð tilfinning, ég er mjög spenntur fyrir kvöldinu. En það sem hefur verið sérstaklega skemmtilegt er hvað viðtökurnar hafa verið frábærar og ég lofa frábæru stuði í kvöld.“

Hvernig kom það til að þú heldur þessa tónleika núna?
„Bæði er það til þess að fagna laginu og svo hefur mig alltaf langað til að halda tónleika. Ég reyndi fyrst þegar ég var í 4. bekk. Það var einföld útgáfa – ég var á fótboltavellinum og söng lög eftir Herra Hnetusmjör, en það mættu aðeins fjórir. Nú eru liðin sex ár og búið að leggja miklu meira í undirbúninginn fyrir kvöldið og ég vona að það komi fleiri en fjórir í kvöld. Ég er auðvitað bara að gera þetta í fyrsta sinn svona af einhverri alvöru, en mamma og pabbi sögðu þetta alltaf við mig: Þú getur gert allt sem þú vilt ef þú leggur þig allan fram í það.“

Aðspurður um hvenær áhuginn á tónlistinni hafi kviknað segir Sigtryggur að það hafi gerst þegar hann var í þriðja bekk: „Þá spurði bróðir minn mig hvort ég vildi gera lag með sér og ég var sko strax til. Hann setti beat-ið í gang og kom með svakalega flottan texta. Ég var strax til í þetta. Við náðum reyndar aldrei að klára lagið og ég reyndi nokkrum sinnum að stelast í tölvuna hans til að finna það, en fann það aldrei aftur.“

Það leynir sér ekki að bróðir hans er mikil fyrirmynd hjá S!lla. „Bróðir minn leiddi mig út á þessa braut og sendi mér alltaf lögin sem hann gerði og það kveikti og viðhélt áhuganum hjá mér. Mig langar til að feta í fótspor hans.“ S!ll! lítur björtum augum til framtíðar og segist stefna á að gefa út fleiri lög og halda marga tónleika. Hlusta má á lagið í spilaranum hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.