Í dag klukkan 14:00 mætast ÍBV og Selfoss í 18. umferð Olís deild kvenna þegar liðin eigast við í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
ÍBV situr í 2. sæti deildarinnar og er í harðri baráttu á toppnum, á meðan Selfoss berst fyrir lífi sínu á botni töflunnar. Tvö stig eru því afar mikilvæg fyrir bæði lið – af ólíkum ástæðum.
Heimavöllurinn í Eyjum hefur reynst sterkt vígi í vetur og má búast við góðri stemningu þegar flautað verður til leiks í dag.
Leikir dagsins:
| Dagsetning | Tími | Umferð | Völlur | Dómarar | Lið |
|---|---|---|---|---|---|
| Lau. 21. feb. 26 | 14:00 | 18 | Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja | KG/MKJ/SÓ | ÍBV – Selfoss |
| Lau. 21. feb. 26 | 14:30 | 18 | Lambhagahöllin | RM/ÓIS/JR |
Fram – ÍR
|
| Lau. 21. feb. 26 | 15:00 | 18 | Heklu Höllin | BB/GÓG | Stjarnan – Valur |