Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
Tómas Bent í leik með Hearts.

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var í byrjunarliði Hearts gegn Falkrik í Skosku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Tómas lék nánast allan leikinn, á miðsvæðinu, í mikilvægum 1-0 sigri. Mark Hearts kom á 45 mínútu en þar var að verki Islam Chesnokov, og reyndist það eina mark leiksins. Þetta var fyrsta mark Chesnokov fyrir Hearts. Hearts eru nú aftur á sigurbraut eftir 4-2 tap gegn Rangers í síðustu umferð. 

Hearts er með fimm stiga forskot á toppnum í skosku deildinni. Rangers sem situr í 2. sæti á leik til góða og Celtic sem er í 3. sæti, sex stigum á eftir Hearts, á tvo leiki til góða.

Næsti leikur Hearts er gegn Aberdeen á Tynecastle Park, laugardaginn 28. febrúar.

Nýjustu fréttir

Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.