ÍBV sækir KA heim í dag
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Í dag klukkan 14:45 mætir ÍBV liði KA í 19. umferð Olís deild karla. Leikið verður í KA heimilinu á Akureyri.

ÍBV situr í 5. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur unnið 11 leiki, gert eitt jafntefli og tapað sex. Markatalan er jákvæð um 17 mörk og Eyjamenn eru í harðri baráttu um sem besta stöðu fyrir úrslitakeppnina. KA er sæti neðar, í 6. sæti með 22 stig eftir 18 leiki. Norðanmenn hafa unnið 11 leiki en tapað sjö og því er ljóst að um hreinan sex stiga leik er að ræða í baráttunni um efri hluta töflunnar.

Einbeiting og kraftur

Í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV í gær kom fram að leikmenn hafi haldið norður vel undirbúnir og einbeittir. Þar segir að liðið hafi æft af krafti undanfarið og sé „svangt í sigur“ fyrir verkefnið gegn KA.

Leikir liðanna hafa oft verið jafnir og spennandi og má búast við hörkuleik þegar flautað verður til leiks síðdegis. Með sigri getur ÍBV styrkt stöðu sína í 5. sæti og aukið forskotið á næstu lið. Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 14:45 og verður í beinni útsendingu á Handboltapassanum.

Nýjustu fréttir

Eyjafréttir standa við „samsuðuna“
Vonast til að dýpkun hefjist á fimmtudag
Ung eyjamær sigraði upplestrarkeppnina
Fiskeldið á fleygiferð í byrjun árs
„Gengið eins og í sögu”
Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.