Dýpi var mælt í Landeyjahöfn fyrr í dag, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Eins og sést á myndinni hér að neðan er dýpi ekki nægilegt fyrir ferjuna til þess að sigla til og frá höfninni.
Aðstæður eru sambærilegar og þegar dýpi var mælt síðast. Af þessum sökum verður áfram siglt til og frá Þorlákshöfn þar til annað verður tilkynnt. Farþegar verða upplýstir um niðurstöður dýptarmælinga og stöðu mála í höfninni um leið og nýjar upplýsingar berast, segir jafnframt í tilkynningunni.

Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.