Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Menn með skoðanir, Friðrik, Rúnar, Viðar, Guðmundur, Hjálmar og Pétur. Standandi eru Jarl og Svavar Steingríms.

Það er að færast fjör í leikinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí nk. Fjórtán frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem verða á föstudaginn kynntu sig á fjölmennum fundi í Ásgarði á laugardaginn. Áreiðanlegar heimildir herma að listi Eyjalistans sé nánast klár og verði kynntur á næstunni. Að honum standa Framsókn, Samfylking og Vinstri græn. Á meðan hefur lítið heyrst frá Miðflokknum eftir að hafa kynnt nokkrar konur og karla sem eru tilbúinn í slaginn í vor.

Kaffistofur bæjarins eiga það sameiginlegt að þar er ekki töluð vitleysan og mættu eyjafréttir.is í seinni bylgjuna í N1 við Friðarhöfn í morgun til að taka púlsinn á mönnum. Fyrri bylgjan er klukkan 9.30 en sú seinni kl. 10.30 og þar mæta menn með skoðanir.

Því fékk Jarl Sigurgeirsson, sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins að kynnast. Hann fékk nokkrar spurningar sem hann svaraði af kurteisi en líka var rætt um gagn og nauðsynjar dagsins. Allt á þægilegu nótunum þó ekki séu menn alltaf sammála.

 

Nýjustu fréttir

The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.