Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam rúmlega 30 milljörðum króna í febrúar. Það er um 13% aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var að jafnaði um 4% sterkara nú í febrúar en fyrir ári, er aukningin nokkuð meiri í erlendri mynt, eða um 18%. Þetta má greina í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í febrúar, en þar eru verðmætin einungis birt niður á grófa vinnsluflokka, ekki fisktegundir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SFS.
Þar segir jafnframt að aukninguna í febrúar megi rekja til nokkurra vinnsluflokka. Mikil aukning var í útflutningsverðmæti heilfrysts fisks, eða sem nemur um 64% milli ára á föstu gengi. Telja má nokkuð víst að þá aukningu megi að stærstum hluta rekja til loðnu. Þá var einnig talsverð aukning í ferskum afurðum (22%), frystum flökum (20%), söltuðum og þurrkuðum afurðum (14%) og fiskimjöli (41%). Á móti var samdráttur í útflutningsverðmæti lýsis (40%) og annarra sjávarafurða (16%).
Útflutningsverðmæti sjávarafurða er komið í tæpa 58 milljarða króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Það er um 7% aukning á föstu gengi frá sama tímabili í fyrra. Þar munar mest um aukningu í útflutningsverðmæti frystra flaka (13%) og ferskra afurða (12%). Einnig hefur orðið veruleg aukning í fiskimjöli (41%) og heilfrystum fiski (21%). Á móti vegur samdráttur í öðrum vinnsluflokkum, þar á meðal lýsi (16%) og söltuðum og þurrkuðum afurðum (3%).
Af þessum tölum má ráða að ágætur gangur hafi verið í útflutningi sjávarafurða í upphafi árs. Athyglisvert verður að fylgjast með þróuninni á næstu mánuðum, en afrakstur loðnuvertíðarinnar, sem nú er senn á enda, mun án efa setja sinn svip á útflutningstölurnar. Þetta á ekki síst við í ljósi þess að vertíðin í fyrra var afar takmörkuð og árið þar á undan var loðnubrestur.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.