Í dag er prófkjör á lista sjálfstæðismanna í komandi sveitarstjórnarkosningum í Vestmannaeyjum. Frambjóðendur eru 14 og komu þeir fram á fundi í Ásgarði síðasta laugardag þar sem þau kynntu sig og hvað þau standa fyrir.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst þriðjudaginn 3. mars og lauk í gær og þá höfðu 494 greitt atkvæði á móti 150 fyrir kosningarnar 2022. Það má því búast með góðri þátttöku í prófkjörinu þar sem Eyþór Harðarsson, núverandi oddviti Sjálstæðisflokksins í bæjarstjórn og Trausti Hjaltason sem setið hefur tvö kjörtímabil í bæjarstjórn gefa kost á sér í fyrsta sætið.
Kosið er í Ásgarði og hefst í dag kl. 14.00 í Ásgarði og stendur í dag til. kl. 22.00. Prófkjörsvaka verður í AKÓGES og stendur til þar til talningu lýkur.
Frambjóðendur
| Aníta Jóhannsdóttir |
| Ármann Halldór Jensson |
| Eyþór Harðarson |
| Guðbjörg Sól Sindradóttir |
| Hannes Kristinn Sigurðsson |
| Hildur Sólveig Sigurðardóttir |
| Jarl Sigurgeirsson |
| Kjartan Vídó Ólafsson |
| Margrét Rós Ingólfsdóttir |
| Óskar Jósúason |
| Ragnheiður Lind Geirsdóttir |
| Rannveig Ísfjörð |
| Trausti Hjaltason |
| Þóra Guðný Arnarsdóttir |