Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja fékk nýverið kynningu á stöðu fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2025 frá deildarstjóra velferðarmála og sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs. Alls nam fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins um 34,8 milljónum króna á árinu. Upphæðin skiptist í styrki, framfærslulán og stuðning við börn og unglinga.
Í kynningunni kom fram að Vestmannaeyjabær leggi ríka áherslu á að styðja einstaklinga til virkni og atvinnuleitar. Fjárhagsaðstoð sé fyrst og fremst hugsuð sem neyðaraðstoð á leið fólks í átt að atvinnu eða örorkulífeyri.
Í niðurstöðu ráðsins kemur fram að fulltrúar þakki fyrir kynninguna og hvöttu þeir jafnframt stofnanir og fyrirtæki í bænum til að taka þátt í að skapa atvinnutækifæri fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu. Bent er á að slíkt samstarf sé meðal annars hægt að útfæra í gegnum Vinnumálastofnun með nýtingu ráðningarstyrkja.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.