Ljósmyndakeppni fyrir börn og ungmenni
Börnum gefst færi á að taka þátt í ljósmyndakeppni.

Í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi stendur börnum og ungmennum í Vestmannaeyjum til boða að taka þátt í ljósmyndakeppninni „Suðurland með augum barna“. Keppnin er liður í sameiginlegu verkefni sveitarfélaga á Suðurlandi þar sem markmiðið er að gefa yngri kynslóðinni tækifæri til að tjá sig í gegnum ljósmyndun og sýna sitt sjónarhorn á nærumhverfi sitt.

Keppnin er opin börnum og ungmennum á aldrinum 5 til 18 ára og er skipt í þrjá aldursflokka, 5 til 8 ára, 9 til 12 ára og 13 til 18 ára. Hver þátttakandi má senda inn allt að þrjár ljósmyndir.

Þemað hjá börnum hér í Eyjum tengist Vestmannaeyjum og er þátttakendum frjálst að túlka það á sinn hátt. Myndirnar geta til dæmis sýnt náttúru, daglegt líf, fólk, leik, menningu eða annað sem fangar athygli.

Valin verða bestu verk í hverju sveitarfélagi og fara þrjár efstu myndirnar áfram í sameiginlega stafræna ljósmyndasýningu undir yfirskriftinni „Suðurland með augum barna“, þar sem verk barna víðs vegar af Suðurlandi verða sýnd saman.

Skilafrestur er til 12. apríl og skal senda myndirnar á netfangið barnamenning@vestmannaeyjar.is. Mikilvægt er að skrá fullt nafn og kennitölu og merkja umsóknina „Ljósmyndakeppni“.

Nánari upplýsingar um reglur má sjá á vef Vestmannaeyjabæjar.

Nýjustu fréttir

Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Kæru vegna útboðs heilsuræktar hafnað – skilmálarnir ekki metnir efnislega
Loðnan ofarlega á baugi hjá kaupendum í Asíu
Arnar tilkynnti lokahóp Íslands – Þrjár Eyjakonur á leið á EM
Jarðvinna og húsbyggingar í Eyjum
Tíundubekkingar standa vaktina í skammdeginu
Nýtt fyrirkomulag á hrekkjavökunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.