Hörku skákmót hjá TV á skírdag
Teflt í félagsheimili TV.

Sigurjón Þorkelsson varð hraðskákmeistari Vestmannaeyja 2026 þegar Hraðskákmeistaramót Vestmannaeyja fór fram á skírdag í skákheimili Taflfélags Vestmannaeyja (TV).

Alls tóku 10 keppendur þátt, tefldar voru níu umferðir og tímamörk voru 5 mínútur á skák auk 3 sekúndna viðbótar fyrir hvern leik.

Á árum áður voru 5 mínútur algeng tímamörk í hraðskák, en þá kom oft fyrir að keppendur féllu á tíma og töpuðu skákum. Með því að bæta við 3 sekúndum fyrir hvern leik má að mestu koma í veg fyrir slíkt. Skákklukkur sem bjóða upp á þessa viðbót eru kenndar við Bobby Fischer, fyrrum heimsmeistara í skák, sem átti hugmyndina að þessum búnaði. Slíkt tímakerfi er einnig notað í lengri kappskákum.

Sigurjón Þorkelsson sigraði mótið með 8,5 vinninga af níu mögulegum. Í 2.–3. sæti urðu jafnir Arnar Bogi Andersen og Arnar Sigurmundsson með 6,5 vinninga hvor. Í fjórða sæti hafnaði Auðunn Haraldsson með 5,5 vinninga.

Árangur Arnars Boga Andersen var sérstaklega athyglisverður en hann lagði marga eldri og reyndari keppendur að velli, segir í tilkynningu frá Taflfélagi Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.