Eyjakonan, Díana Dögg Magnúsdóttir og Andrea Jacobsen, tilvonandi leikmaður ÍBV, urðu deildarmeistarar með Blomberg-Lippe, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Þær tryggðu sér efsta sætið í þýsku úrvalsdeildinni með tveggja marka sigri, 33-31, á Borussia Dortmund. Fyrir leikinn var Dortmund á toppnum með 35 stig og Blomberg-Lippe með 34 stig í öðru sæti en með sigrinum komst Blomberg upp fyrir Dortmund og vann deildina með 36 stig.
Díana Dögg skoraði sex mörk í leiknum og innsiglaði sigur Blomberg-Lippe með lokamarki leiksins. Andrea Jacobsen gaf þrjár stoðsendingar.
Nú þegar deildinni er lokið, hefst úrslitakeppnin. Auk Blomberg-Lippe hafa Dortmund, Flames og Thuringer HC tryggt sæti sitt í úrslitakeppninni. Liðin í 5.-11. sæti fara í umspil um sæti í úrslitakeppninni.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.