Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.
Markmiðið er að veita lesendum innsýn í fólkið á bak við listana og þau málefni sem þau telja brýnust.
Nafn: Erlingur Guðbjörnsson.
Aldur: 53 ára.
Fjölskylda: Giftur Rögnu Steinu S. Lárudóttur og eigum þrjú börn. Kristján Lárus, Antoníu Emmu og Sunnu Maríu.
Menntun og störf: Ég er rekstrarstjóri Íslandspósts hér í Vestmannaeyjum. Ég er með diplómu í stjórnun frá háskólanum á Akureyri, Eins er ég með diplómu í Mannauðsstjórnun frá NTV.
Fyrri afskipti af stjórnmálum: Búinn að vera varabæjarfulltrúi og formaður framkvæmda og hafnarráðs síðasta kjörtímabil.
Af hverju Eyjalistinn? Eyjalistinn er hópur af frábæru fólki sem sem vill gera vel fyrir bæinn. Þetta er fólk sem er með víðtæka og góða reynslu, sem þarf til að reka bæjarfélag eins og Vestmannaeyjar.
Brýnustu verkefni: Vestmannaeyjabær er í mikilli sókn og stöndum við á tímamótum hvað varðar uppbyggingu. Þess vegna þurfum við að tryggja:
Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég mun leggja sérstaka áherslu á uppbyggingu innviða, bæði fyrir fjölskyldur og atvinnulíf. Þar skipta skólamál, leikskólamál og íþróttaaðstaða miklu máli, því það er grunnurinn að öflugu samfélagi. Þá vil ég einnig vinna markvisst að því að bæta samgöngur, tryggja öryggi og fyrirsjáanleika í ferðum til og frá Eyjum og halda áfram að þrýsta á ríkið um að standa við sinn hluta. Einnig tel ég mikilvægt að efla atvinnulíf, styðja við nýsköpun og tryggja að Vestmannaeyjar séu áfram aðlaðandi staður til að búa og starfa á.
Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Ég sé Vestmannaeyjar sem kraftmikið og fjölbreytt samfélag sem heldur áfram að vaxa og dafna. Við stöndum á tímamótum þar sem stór verkefni eru fram undan, og ef við tökum réttar ákvarðanir núna getum við tryggt að uppbyggingin hér haldi áfram. Ég sé fyrir mér bæ þar sem innviðir eru sterkir, þjónusta til fyrirmyndar og tækifærin fjölmörg, bæði fyrir ungt fólk, fjölskyldur og atvinnurekendur. Með góðri samvinnu getum við skapað framtíð þar sem Vestmannaeyjar verða áfram eitt öflugasta og eftirsóknarverðasta samfélag landsins.
Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Eyjalistans: Ég kem inn með reynslu úr bæjarmálunum, rekstri og mannauðsmálum, sem nýtist vel þegar kemur að því að taka upplýstar og ábyrgðarfullar ákvarðanir. Ég er lausnamiðaður, vanur að vinna með fólki og tekst á við verkefni af festu og heiðarleika. Ég þekki samfélagið vel og hef sterka tengingu við Eyjarnar, bæði í gegnum fjölskyldu, vini og störf. Ég vil leggja mitt af mörkum til að tryggja að Vestmannaeyjar haldi áfram að vera góður staður til að búa á, og ég er tilbúinn að vinna hörðum höndum að því.
Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Það sem skiptir mig mestu máli er að Vestmannaeyjar séu öruggt, lifandi og fjölskylduvænt samfélag þar sem fólk hefur tækifæri til að blómstra. Að börnin okkar hafi góðan aðgang að menntun tómstundum og íþróttum, að fjölskyldur hafi aðgang að öflugri þjónustu og að atvinnulífið sé sterkt og fjölbreytt. Ég vil að við séum stolt af bænum okkar og að framtíðin hér sé björt, fyrir okkur öll.