ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

ÍBV hefur í dag keppni í Bestu deild karla þegar liðið tekur á móti FH á Hásteinsvelli. Leikurinn hefst klukkan 13:00.

Upphitun hefst klukkan 12:00 þar sem stuðningsmenn geta komið sér í gírinn fyrir leikinn. Þá verða grillaðir borgarar til sölu á svæðinu og því tilvalið að mæta snemma, njóta stemningarinnar og styðja við bakið á liðinu.

Mikil eftirvænting ríkir fyrir leiknum enda fyrsta alvöru prófraunin í deildinni í sumar. Hásteinsvöllur hefur jafnan reynst ÍBV sterkur og verður spennandi að sjá hvernig liðið mætir til leiks gegn FH, sem einnig ætlar sér stóra hluti í sumar.

Um er að ræða einn af fimm leikjum dagsins í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Síðar í dag fara fram eftirfarandi leikir:

  • KA – Stjarnan (Greifavöllurinn, kl. 17:00)
  • KR – Keflavík (Meistaravellir, kl. 17:00)
  • Valur – Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda, kl. 17:00)
  • Fram – ÍA (Lambhagavöllurinn, kl. 19:30)

Nýjustu fréttir

Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.