Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að ganga til samninga við verktakafyrirtækið Þjótanda vegna landfyllingar við Eiði.
Aðeins eitt tilboð barst í verkið, frá Þjótanda, að upphæð 35,7 milljónir króna með virðisaukaskatti. Sá hluti verksins sem snýr að girðingu svæðisins verður hins vegar unninn af starfsmönnum hafnarinnar og var því tekinn út úr tilboðinu.
Samkvæmt tillögu hafnarstjóra verður samið við fyrirtækið um fyrstu tvo áfanga verkefnisins, sem fela í sér rannsóknarborun og jarðvinnu. Lokaáfanginn, sem snýr að bakfyllingu og yfirborðsfrágangi, verður tekinn til ákvörðunar síðar, þegar niðurstöður úr tilraunaholu liggja fyrir og ljóst er hvernig efni fæst á svæðinu.
Fyrir liggur staðfesting frá Vegagerðinni um að hún muni greiða 60% af kostnaði verksins. Það er þó háð því skilyrði að ríkisstyrkt verkefni sem nýta námuna í framtíðinni greiði ekki sérstaklega fyrir efnistöku eða námugjöld.
Ráðið samþykkti samhljóða að taka tilboði Þjótanda og fól hafnarstjóra að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli þess.