Hvað er það sem við viljum fá út úr grunnskólum okkar hér í Vestmannaeyjum? Viljum við framúrskarandi árangur og hvað felst í honum? Eru það eingöngu háar einkunnir, eða er það að ala upp sjálfstæða, hamingjusama og virka þjóðfélagsþegna sem eru tilbúnir út í lífið?
Grunnskóli Vestmannaeyja er stærsti vinnustaður bæjarins. Þar stunda yfir 500 nemendur nám og fjöldi starfsfólks sem leggur sitt af mörkum á hverjum degi. Útgjöld Vestmannaeyjabæjar til skólans eru því verulegur hluti af fjármunum bæjarins. Það er því eðlilegt að gera kröfu um að þeim fjármunum sé vel varið. Það er eðlilegt að horfa til þess að fjárfesting í menntun er fjárfesting í framtíðinni.
Við í Eyjum erum afar heppin að búa yfir öflugum hópi kennara. Hlutfall vel menntaðra kennara er hátt. Kennarastarfið hefur hins vegar tekið miklum breytingum á undanförnum árum. Kröfurnar eru meiri, hlutverkið fjölbreytt og áskoranirnar í samræmi við það. Þess vegna er lykilatriði að vinnustaðurinn sé góður og að kennarar og annað starfsfólk skólans njóti trausts, virðingar og stuðnings.
Við viljum skóla sem mætir þörfum allra nemenda. Skóla þar sem fjölbreyttar kennsluaðferðir eru nýttar til að ná sem bestum árangri, með aðgang að þeim tækjum og tólum sem eykur ánægju og árangur nemenda og starfsfólks. En árangur er ekki aðeins mældur í tölum, hann birtist líka í vellíðan, áhuga og þátttöku.
Þróunarverkefnið Kveikjum neistann er gott dæmi um þessa nálgun. Verkefnið hefur verið í gangi í fimm ár og það sem vekur áhuga er aukin þátttaka foreldra. Foreldrar eru tilbúnir að taka virkan þátt í námi barna sinna og þar liggur einn af lykilþáttum árangursríks skólastarfs. Þegar heimili og skóli vinna saman skapast sterkari grunnur fyrir nemendur. Þegar við göngum í takt náum við lengra.
Við megum heldur ekki gleyma því að börnin okkar munu starfa við störf sem eru ekki til í dag. Þau munu skapa ný störf, leysa ný verkefni og takast á við áskoranir sem við þekkjum ekki, ennþá. Þess vegna þarf grunnskólinn að búa þau undir meira en próf, hann þarf m.a. að efla sköpun, gagnrýna hugsun, samvinnu og sjálfstraust. Sameinuð erum við sterkari og þar með verður framtíðin öflugri.
Guðríður Jónsdóttir, grunnskólakennari.
Höfundur skipar 14. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.