Staðan í samgöngumálum Vestmannaeyja er ekki lengur bara áhyggjuefni heldur er hún orðin óásættanleg. Það er ekki lengur hægt að tala um þetta sem tímabundið ástand eða óheppni. Þetta er staðfestur kerfisbrestur.
Á sama tíma og ferðaþjónustan, ein mikilvægasta atvinnugrein landsins, ætti að vera að fara af stað af fullum krafti, eru afbókanir byrjaðar að hrannast upp, tekjur að hverfa og traust ferðamanna að brotna niður.
Vorið er komið og veðrið hefur verið með besta móti síðustu daga, eins og innviðaráðherra kallaði eftir. Samt bólar ekkert á Landeyjahöfn.
Ef við eigum að tala mannamál þá er þetta eins og að setja snjóplóg á Toyota Yaris og ætlast til að hann haldi Hellisheiði opinni miðað við afkastagetuna. Erum við farin að gefa mætingaverðlaun fyrir dýpkunarskip líka?
Staðan heldur áfram að versna.
Á sama tíma hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu og Vestmannaeyjabær fjárfest fyrir milljónir króna í markaðssetningu. Til hvers? Svo ferðamenn komi að lokuðum dyrum?
Þetta er ekki nýtt vandamál. Á Alþingi hefur komið fram (þökk sé Karli Gauta hjá Miðflokknum) að Landeyjahöfn hefur aldrei verið fullkláruð, að vandinn með sandburð var þekktur frá upphafi og að tillögur um úrbætur voru samþykktar árið 2019.
Nokkrar staðreyndir um stöðuna í dag:
Við erum farin að missa sumarið í apríl.
Ef fólk kemst ekki til og frá Eyjum þá stoppar ferðaþjónustan, atvinnulífið veikist og traust tapast sem tekur ár að byggja upp aftur.
Spurningin er einföld. Hvað ætlið þið að gera NÚNA!?
Jón Þór Guðjónsson
Oddviti Miðflokksins í Vestmannaeyjum.