Milljarðaverkefni í Eyjum: Lægsta tilboð 1,42 milljarðar
Tölvugerð mynd sem sýnir fyrirhugaða viðbyggingu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Mynd/vestmannaeyjar.is

Opnun tilboða í viðbyggingu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja fór fram 14. apríl síðastliðinn og bárust alls fjögur tilboð í verkið. Um er að ræða eitt stærsta framkvæmdaverkefni bæjarins á næstu árum.

Lægsta tilboðið barst frá fyrirtækinu Steini og Olli ehf. og hljóðar það upp á 1.421.818.336 krónur. Tilboðið er um 51,7 milljónum króna undir kostnaðaráætlun verksins sem nam 1.473.501.500 krónum.

Önnur tilboð sem bárust voru eftirfarandi:

  • K16: 1.561.352.112 kr.
  • Eykt: 1.762.948.794 kr.
  • Ístak hf.: 1.799.890.781 kr.

Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja fundaði í hádeginu í dag þar sem þetta mál var eina málið á dagskrá. Ráðið samþykkti að taka tilboði lægstbjóðanda og var sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs falið að ganga til samninga við Steina og Olla á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.

Málinu hefur jafnframt verið vísað til bæjarráðs til frekari umfjöllunar og staðfestingar.

Nýjustu fréttir

Milljarðaverkefni í Eyjum: Lægsta tilboð 1,42 milljarðar
Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð?
Kostnaður, kvíði og aðskilnaður
Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta
Fullt hús og góð stemning var í Salnum í gærkvöldi
Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör með þjóðhátíðarlagið
Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.